Fyrri sjúkraflugvélin lendir á Reykjavíkurflugvelli
Sjúkraflugvél Norlandair sem fór í loftið um klukkan 14:10 er lent á Reykjavíkurflugvelli. Arnar Friðriksson framkvæmdastjóri flugfélagsins hefur staðfest að tvær flugvélar frá því taki þátt í aðgerðunum en seinni vélin fór í loftið um klukkan 14:45 og er áætlað að hún lendi laust fyrir þrjú á höfuðborgarsvæðinu.