Ræddu bókun 35 í fleiri klukkustundir
Það var ekki margt um manninn þegar önnur umræða um frumvarp utanríksiráðherra um bókun 35 hélt áfram á Alþingi í dag. Ekki tókst að ljúka umræðu um frumvarpið þegar þingfundi var frestað aftur á fimmta tímanum í dag, en þá höfðu þingmenn rætt frumvarpið í hátt í tólf klukkustundir í gær og í dag.