Hamfaraflóð í Nepal

Hundraða er saknað eftir skyndiflóð í Nepal og Tíbet. Þeirra á meðal eru hátt í sex hundruð ferðamenn en margir þeirra voru í göngu á svæðinu. Að minnsta kosti eitt hundrað og fimmtíu eru látnir en reiknað er með að fjöldinn sé mun meiri. Á myndskeiðum sést þegar flóðið ryðst með hrikalegum afleiðingum niður dal við Himalæjafjöllin en talið er líklegt að snjóflóð í jökli hafi valdið flóðunum sem urðu í morgun um klukkan níu að staðartíma. Ekkert hefur þó enn verið staðfest með upptökin.

76
00:49

Vinsælt í flokknum Fréttir