Samfylkingin mælist með mest fylgi í Hafnarfirði

Samfylkingin mælist með mest fylgi í Hafnarfirði í nýrri könnun Maskínu eða ríflega 24 prósent. Það er þó nokkru minna en í síðustu sveitarstjórnarkosningum þegar flokkurinn fékk 29 prósent atkvæða. Það sem vekur athygli er að Viðreisn fer upp fyrir Sjálfstæðisflokk og mælist næststærst með 22,4 prósent. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er kolfallinn þrátt fyrir fylgisaukningu Framsóknar sem mælist nú í fimmtán prósentum. Vinstrið mælist í sjö prósentum en fengi ekki mann í bæjarstjórn. Miðflokkurinn er á mikilli siglingu og fengi næstum tíu prósent atkvæða en hann fékk tæplega þrjú prósent í síðustu kosningum. Oddvitaefni framboðanna ræddu niðurstöðurnar í Kosningapallborði í dag.

2
02:04

Vinsælt í flokknum Fréttir