Tvisvar brotist inn í verslun á tæpri viku

Tvisvar hefur verið brotist inn í verslun Húrra Reykjavík við Hverfisgötu á tæpri viku. Myndbönd náðust af báðum innbrotum. Í því fyrra brutu þrír svartklæddir menn rúðu í útidyrahurð og gripu heilu bunkana af fatnaði sem þeir tróðu ofan í ferðatösku sem þeir höfðu meðferðis. Innbrotið tók örskamma stund og komust þeir á brott með þýfi upp á aðra milljón króna. Þeir voru síðar handteknir og verða kærðir fyrir þjófnaðinn. Í nótt var svo aftur brotist inn. Þjófurinn spennti hurðina upp og hafði á brott peysur og buxur að andvirði nokkur hundruð þúsund króna. Sá er ófundinn.

8
01:06

Vinsælt í flokknum Fréttir