Vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug
Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja elli- og örorkubætur við launavísitölu. Breytingin sé gerð til að koma í veg fyrir kjaragliðnun milli öryrkja og ellilífeyrisþega og lægstu launa í gegnum tíðina. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta líkt og eigi við um aðrar launahækkanir.