Allt í lagi með Birni Skúlasyni - Mugison
Þættirnir Allt í lagi með Birni Skúlasyni, eiginmanni Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, hefja göngu sína á Vísi í dag. Þar ræðir hann við tónlistarmenn um lífið og tilveruna. Þættirnir verða 8 talsins og koma út hálfsmánaðarlega. Þættirnir eru unnir í samvinnu við Hugarafl.