Rann til á aksturbraut við Keflavíkurflugvöll

Airbus-þota Icelandair rann til á aksturbraut við Keflavíkurflugvöll um klukkan fimm í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair telst atvikið minniháttar, engar skemmdir urðu á vélinni og engan sakaði. Flugvélin var á leið frá flugstöðinni og til flugtaks en talið er að hún hafi runnið til í hálku og vindi. Áformað er að flugvélin fari aftur í afísingu áður en hún fer í loftið. Akbrautinni var lokað á meðan dráttarbíll var sendur eftir vélinni en flugbrautir eru opnar.

8
00:38

Vinsælt í flokknum Fréttir