Lífið samstarf

Gjafir sem gleðja og endast frá Lín Design

Lín Design
Hjá Lín Design er áhersla lögð á vandaðar jólagjafir sem nýtast í daglegu lífi.
Hjá Lín Design er áhersla lögð á vandaðar jólagjafir sem nýtast í daglegu lífi.

Mjúk rúmföt, falleg handklæði eða þægileg flík geta veitt gleði langt fram yfir jólin. Hjá Lín Design er áhersla lögð á vandaðar jólagjafir sem nýtast í daglegu lífi þegar velja á gjöf fyrir fjölskylduna, vini eða starfsfólkið. Ágústa segir úrvalið hafa vaxið jafnt og þétt og að þar megi nú finna gjafir fyrir alla fjölskylduna.

„Jólatímabilið er að byrja og fólk er farið að koma til okkar, skoða og velta fyrir sér gjöfum. Við leggjum áherslu á fallegar og vandaðar vörur sem fólk hefur raunveruleg not fyrir og getur notið lengi,“ segir Ágústa.

Hún segir nytsamlegar gjafir eiga sérstaklega vel við þegar fólk vilji gefa eitthvað sem verði hluti af daglegu lífi. Góð handklæði og mjúk rúmföt séu til dæmis vörur sem allir noti en geti um leið aukið þægindi og notalegheit á heimilinu.

„Mér finnst fallegasta jólagjöfin oft vera eitthvað sem fólk myndi ekki endilega kaupa handa sér sjálft en notar svo með ánægju á hverjum degi. Vönduð rúmföt og góð handklæði eru einmitt dæmi um slíkar gjafir.“

Mjúkar gjafir fyrir notalegan hversdag

Rúmföt eru meðal vinsælustu jólagjafanna hjá Lín Design og þar er hægt að velja á milli ólíkra efna eftir smekk og þörfum viðtakandans. Í úrvalinu eru meðal annars silkimjúk bambusrúmföt, vönduð Pima-bómullarrúmföt, múslínrúmföt og silki.

„Fólk hefur ólíkar óskir þegar kemur að rúmfötum og þess vegna er gott að geta boðið upp á fjölbreytt efni. Við aðstoðum fólk við að finna það sem hentar,“ segir Ágústa. Dúnsængur og dúnkoddar séu einnig góðir kostir fyrir þá sem vilji gefa vandaða gjöf sem nýtist lengi. Handklæðin séu sömuleiðis vinsæl, bæði ein og sér og í fallegum gjafasettum.

„Við erum með falleg handklæðagjafasett sem innihalda þrjú handklæði í mismunandi stærðum. Einnig er hægt að útbúa gjafasett í versluninni eftir óskum hvers og eins. Handklæðin fást bæði án bróderingar og með fallegri bróderingu sem gefur þeim persónulegan svip og gerir þau að sérstaklega skemmtilegri jólagjöf.“

Fatnaður og fallegir hlutir fyrir heimilið

Ninepine er ný viðbót við úrvalið hjá Lín Design. Ágústa segir skandinavíska fatamerkið hafa fengið góðar viðtökur og vinsælu Asana buxurnar sérstaklega vakið athygli.

„Við höfum verið að stækka úrvalið frá Ninepine og erum nú líka með fallegar merínóullarpeysur, boli, jakka og fleiri flíkur. Þetta er vandaður og þægilegur fatnaður sem hentar bæði hversdags og við fínni tilefni.“

Gjafavörur skipa einnig stóran sess í jólaúrvalinu. Frá Jakobsdals fást meðal annars kerti, keramik og glervörur en íslensk hönnun Lín Design á líka sinn stað, þar á meðal dúkar, löberar og teppi.

„Úrvalið er í öllum verðflokkum. Við viljum að fólk geti komið til okkar og fundið fallegar jólagjafir fyrir alla á einum stað.“

Viðskiptavinir geta fengið persónulega aðstoð í versluninni en einnig skoðað úrvalið og nálgast upplýsingar um vörurnar í netversluninni.

Jólanáttföt sem fylgja fjölskyldunni

Barnadeildin hefur stækkað og nær nú yfir mun fleira en vörur fyrir svefninn. Þar má meðal annars finna rúmföt, bambusteppi, bækur, barnfatnað frá Fixoni, mjúkdýr frá Jellycat og margverðlaunaðar barnavörur frá Matchstick Monkey.

Jólanáttfötin fyrir alla fjölskylduna eiga líka sinn fasta sess. Þau eru skreytt Grýlu og íslensku jólasveinunum og segir Ágústa þau orðin hluta af aðventuhefðum margra fjölskyldna.

Klippa: Sæt jólanáttföt frá Lín Design

„Fólk er farið að nota jólanáttfötin fyrr og njóta þeirra allan desember. Sumir gefa þau í jólagjöf en aðrir við upphaf aðventunnar.“

„Mér finnst líka svo notalegt að halda í íslensku jólahefðirnar. Jólanáttfötin okkar eru skreytt Grýlu og íslensku jólasveinunum og það getur verið skemmtileg stund á aðventunni að segja börnunum sögurnar af þeim.“

„Við höldum sömu litum og mynstrum í jólanáttfötunum milli ára svo ekki þurfi að endurnýja náttföt allra fjölskyldumeðlima þegar börnin vaxa upp úr sínum. Fjölnota jólagjafapokarnir geta síðan fylgt gjöfunum milli heimila og ára. Þeir fást meðal annars með íslensku jólasveinunum, jólakettinum og jólarósinni.“

„Við erum sérstaklega stolt af fjölnota jólagjafapokunum okkar. Mér finnst falleg hugsun að gjafaumbúðirnar séu ekki bara notaðar einu sinni og síðan hent. Pokarnir geta gengið á milli fjölskyldumeðlima og verið notaðir aftur ár eftir ár. Þannig verða þeir hluti af jólahefðinni og um leið má draga úr notkun einnota gjafaumbúða.“

Þakklætisvottur til starfsfólksins

Fyrirtækjagjafir hafa fengið góðar viðtökur hjá Lín Design. Ágústa segir fyrirtæki meðal annars velja dúnteppi, rúmföt úr bambus og múslíni og handklæðasett til að þakka starfsfólki fyrir vel unnin störf.

„Mér finnst starfsmannagjöf fyrst og fremst vera fallegur þakklætisvottur. Við aðstoðum fyrirtæki við að finna vandaðar og nytsamlegar gjafir sem henta bæði fjölda starfsmanna og þeim fjárhagsramma sem þau hafa. Við eigum vörur á lager fyrir stærri pantanir og getum einnig boðið gjafirnar í fjölnota jólagjafapokunum.“

Gjafabréf frá Lín Design séu einnig góður kostur, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga, enda geti verið skemmtilegt að leyfa viðtakandanum að velja sjálfum.

„Þá getur hver og einn fundið eitthvað sem hann langar í eða vantar. Aðalatriðið er að gjöfin gleðji og komi að góðum notum.“

Lín Design er til húsa að Smáratorgi 1 í Kópavogi og vefverslunin er opin allan sólarhringinn á www.lindesign.is. Fyrirtæki geta óskað eftir tilboði í starfsmannagjafir með því að senda tölvupóst á sala@lindesign.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.