Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Jónas Sen skrifar 3. nóvember 2026 07:02 Andris Poga stýrði Sinfóníuhljómsveit Íslands fimmtudaginn 29. október þegar Eyja hinna dauðu eftir Sergej Rakhmanínov og Babí Jar-sinfónían eftir Dmítríj Shostakovítsj voru flutt. Ég notaði einu sinni annan kaflann úr Babí Jar-sinfóníu Sjostakóvitsj, við ljóð eftir Jevtúsjenko, til að monta mig af græjunum mínum. Kaflinn heitir Húmor og fjallar um misheppnaðar tilraunir valdhafa til að þagga niður í hlátrinum. Ég stillti hann upp í ellefu. Von bráðar fór nágranninn að berja í vegginn.
Verk eftir Rakhmanínov og Sjostakóvitsj fimmtudaginn 29. október 2026. Tónleikar í Eldborgarsal Hörpu. Það var orðið nokkuð langt síðan ég hafði heyrt sinfóníuna, sem er númer 13, þegar hún var flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg á fimmtudagskvöldið. Andris Poga stjórnaði, Alexander Roslavets söng einsöngshlutverkið og Fóstbræður, undir stjórn Árna Harðarsonar, ásamt sönghópnum Kyrju mynduðu kórinn. Karon rær Fyrir hlé var Eyja hinna dauðu eftir Rakhmanínov á dagskránni. Þar kom hvorki kór né einsöngvari við sögu. Tónlistin er innblásin af málverki af drungalegri eyju og lýsir ferðinni þangað, um veg allrar veraldar. Það er ekki beint upplífgandi, enda reyndi tónlistin ekkert að vera það. En tilkomumikil var hún. Munúðarfull áferðin, sem byggist á afar þykkum hljómum, naut sín til fulls. Sömuleiðis ástríðufull ákefðin sem er svo einkennandi fyrir Rakhmanínov. Hendingarnar voru mótaðar af innlifun, án nokkurrar tilgerðar. Fimmskiptur takturinn getur verið höktandi, en hér flæddi tónlistin eðlilega. Poga lét hverja nýja bylgju sækja styrk í þá fyrri, og þrátt fyrir þéttan hljómvefinn heyrðist hvað einstakar raddir lögðu til. Mest dáleiðandi voru lágstemmdar endurtekningarnar á upphafshendingu dauðasálmsins Dies irae eftir mikinn ofsa. Þessi stutta hending sneri aftur og aftur og skapaði andrúmsloft eilífðarinnar. Dauðinn hafði nægan tíma og Poga kunni að nýta hann. Grjóthart upphaf Babí Jar-sinfónían byrjaði líka vel. Fyrsti kaflinn minnist fórnarlamba fjöldamorðanna í samnefndu gili við Kænugarð og fordæmir gyðingahatur. Tónninn var ógnvænlegur og hrjóstrugur, hljómsveitin lék af þunga og kórinn var þéttur og fastur fyrir. Roslavets söng af aðdáunarverðu áreynsluleysi. Rödd hans var stór og breið um allt tónsviðið; bæði háir tónar og djúpir höfðu fyllingu og burð. Raddtæknilega var þetta til fyrirmyndar. Slípað og snöggt Ég saknaði þó meiri sársauka. Í upptöku með Vitalí Gromadskí, sem söng frumflutninginn undir stjórn Kirills Kondrashins árið 1962, gengur frásögnin mun nær hlustandanum. Hjá Roslavets var söngurinn hreinlega of fallegur og skapaði fjarlægð á milli hlustandans og þess sem sungið var um. Röddin bar orðin auðveldlega, en sortinn í þeim náði ekki inn í hana. Í öðrum kaflanum urðu vonbrigðin meiri. Poga keyrði hann áfram og húmorinn varð tannlaus. Hraðamerkingin er Allegretto, ekki hratt heldur bara frekar hratt. Dauðinn hafði fengið nægan tíma fyrir hlé, en húmorinn fékk hann ekki nú. Hlátur á hlaupum Í ljóði Jevtúsjenkos reyna yfirvöld að ráða niðurlögum húmorsins. Þau höggva af honum höfuðið og stinga því á spjót, en um leið og flautur trúðanna hljóma rís hann upp og tekur dansspor. Þar vitnar Sjostakóvitsj í eigið lag við ljóð Roberts Burns um útlagann MacPherson, sem lék á fiðlu undir gálganum. Þetta er því afturganga í gálgadansi og maður býst við einhverju yfirnáttúrulegu og óhugnanlegu. Hér hafði húmorinn hins vegar sloppið úr snörunni og var farinn að dansa við Kalla kanínu. Kórinn réð heldur ekki alveg við hraðann. Söngurinn varð um tíma drafandi og bjöguð samstillingin eyðilagði snerpuna. Nágranninn minn hefði ekki einu sinni rumskað, hvað þá barið í vegginn. Samúð og skelfing Í þriðja kaflanum, um konurnar sem standa tímunum saman í biðröð í versluninni, var allt annað að heyra. Kórhljómurinn var safaríkur og hlýr og samkenndin með hvunndagshetjunum leyndi sér ekki. Lokakadensan, skyld amen-endingum kirkjutónlistarinnar, var útfærð af alúð. Þar lá ekkert á. Fjórði kaflinn fjallar um óttann og hjá hljómsveitinni og Roslavets var hann nístandi kaldur. En dýpstu tónar kórsins voru þó leiðinlega mjóir. Sinfónían er samin fyrir bassakór, svo tenórarnir þurftu að syngja bassarödd í öllu verkinu. Hér náðu þeir skiljanlega ekki alla leið niður á dýpstu tónana. Í takt við flokkinn Í miðjum kaflanum brestur kórinn í herskáan mars. Lagið er skopstæling á rússneskum byltingarsöng og textinn segir: „Við óttuðumst ekki að byggja í stórhríð eða ganga í orrustu undir sprengjuregni, en stundum vorum við dauðhrædd við að tala við okkur sjálf“. Hressilegt göngulag undir játningu um ótta á að vera kaldhæðið. Poga tók marsinn hins vegar á slíkum spretti að eftir stóð bara röskur fjöldasöngur sem hefði þess vegna getað verið „Áfram, Kristsmenn, krossmenn“. Maður beið næstum eftir söngblaði og fyrirmælum um hvar ætti að hittast eftir skrúðgönguna. Lokakaflinn, Framabrautin, var aftur á móti yfirvegaður og fagur. Og þó. Í síðustu tónunum má heyra fjarlæga, brothætta von eftir allt sem á undan er gengið. Selestan á að bera hana, en hún var svo hvell og skýr að dulúðin glataðist. Ólesin ljóð Viðtökur áheyrenda voru góðar, en ég hef oft upplifað þær meiri. Fæstir skildu rússneskuna; íslensk þýðing var í tónleikaskránni en letrið var alltof smátt fyrir rökkrið í salnum. Skjár eða textavél, eins og tíðkast í óperuflutningi, hefði skipt sköpum. Merking sinfóníunnar hvílir að miklu leyti á orðunum, og í marsinum býr háðið ekki síst í þeim. Án þeirra var tónlistin ein og sér ekki nóg. Niðurstaða: Eyja hinna dauðu var glæsileg. Fremur yfirborðsleg Babí Jar beit hins vegar ekki almennilega. Uppreisnin og ádeilan voru í smáa letrinu – sem sást varla í myrkrinu.
Gagnrýni Jónasar Sen Sinfóníuhljómsveit Íslands Tónleikar á Íslandi Harpa Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur Fleiri fréttir Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Sjá meira