Íslenski boltinn

Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Benediktsson fagnar marki í KR-treyjunni á sínum tíma.
Guðmundur Benediktsson fagnar marki í KR-treyjunni á sínum tíma.

KR setti á svið sýningu í sóknarleik í Bestu deild karla í sumar og setti markamet sem erfitt verður að slá. Það er því ekkert skrýtið að fyrrum leikmaður félagsins horfi smá öfundaraugum á þetta lið.

Guðmundur Benediktsson varð stórstjarna í Vesturbænum á tíma sínum með KR enda tilþrifakóngur sem breytti leikjum með glæislegum mörkum eða gullfallegum stoðsendingum.

Gummi Ben er auðvitað þekktastur sem knattspyrnulýsandi en á sínum tíma var hann með 57 mörk og 87 stoðsendingar í efstu deild þrátt fyrir að glíma við mörg skelfileg hnémeiðsli.

Það er öllum ljóst að það er gaman að vera sóknarmaður í þessu KR-liði í dag og Guðmundur viðurkennir í nýju viðtali að hann vildi óska að hann væri að spila hjá KR undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar.

Guðmundur ræddi þetta meðal annars í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark.

„Ég hætti eftir 2009-tímabilið en ég horfi alveg á KR-leiki núna og hugsa bara: Mmmm. Djöfull hefði verið gaman að vera í svona liði,“ sagði Guðmundur Benediktsson.

„Þar sem er bara bang, bang, bang. Nú bara skorum við þrjú mörk í þessari sókn. Ég get alveg ímyndað mér að leikmennirnir sem eru þarna séu meira en klárir í þetta. Talandi ekki um þegar tækifærið kemur og þú ert að fá sjénsinn í byrjunarliðinu,“ sagði Guðmundur í stiklu fyrir viðtalsþáttinn hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×