Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sindri Sverrisson skrifar 2. nóvember 2026 06:30 Eiður glotti þegar hann sá í hvað stefndi í spurningum Hjörvars sem sór af sér allar syndir. Sýn Sport Eiður Smári Guðjohnsen á bæði ljúfar og sárar minningar frá Anfield eins og hann rifjaði upp á vellinum í dag á stórleik Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Eiður og Hjörvar Hafliðason ræddu saman fyrir leik um hið einstaka andrúmsloft sem myndast á Liverpool-leikjum á Anfield og rifjuðu líka upp minningar Eiðs af vellinum. Klippa: Eiður á súrar og sætar minningar af Anfield „Ég held að það sé bara samheldnin í fólki. Samheldnin og þessi ótrúlega ástríða fyrir sínu félagi. Maður finnur það bara. Þegar maður kemur hér sem andstæðingur veit maður að maður er ekki bara að eiga við fótboltamenn heldur við allt fólkið hérna uppi í stúku líka. Þetta er einsdæmi,“ sagði Eiður en þeir Hjörvar voru í beinni útsendingu á Sýn Sport vegna stórleiksins í dag. Arsenal vann leikinn 1-0 eftir fjórtán ára bið eftir sigri á Anfield í deildarleik. Hjörvar bað Eið að rifja upp sína bestu minningu frá Anfield en Eið grunaði svo sem strax hvað Hjörvar vildi einnig rifja upp. „Ég hafði aldrei skorað á Anfield fyrir Chelsea en kom hérna með Barcelona og skoraði í Meistaradeildinni. Því miður var það ekki nóg til að koma okkur áfram en samt einstakt,“ sagði Eiður áður en talið barst að færinu sem hann fékk fyrir Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu árið 2005. Færi sem stuðningsmenn Chelsea og Liverpool gleyma seint því hefði Eiður skorað þá hefði Liverpool ekki landað Evrópumeistaratitlinum með sigri á AC Milan í ógleymanlegum úrslitaleik. „Takk fyrir að minna mig á það,“ sagði Eiður léttur en fólkið í Liverpool er honum ævinlega þakklátt: „Þetta er ótrúlegt. Þegar ég kem hingað, og ég hef komið nokkrum sinnum í þessari vinnu… það er svo mikið þakklæti í fólkinu. „Takk fyrir að klúðra þessu færi!“ Svona er þetta bara.“
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira