Handbolti

Ís­lendingarnir með sex­tíu prósent markanna

Sindri Sverrisson skrifar
Ómar Ingi Magnússon skellti í ellefu mörk í kvöld.
Ómar Ingi Magnússon skellti í ellefu mörk í kvöld. EPA/Thomas Traasdahl

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson sáu um sóknarleik Magdeburg í kvöld þegar liðið vann Lemgo á útivelli, 31-28, í þýsku 1. deildinni í handbolta.

Ómar, Gísli og Elvar Örn Jónsson, lykilmenn íslenska landsliðsins, voru á sínum stað í liði Magdeburgar en Elvar spilaði þó afar lítið í kvöld eða rétt um tvær og hálfa mínútu.

Ómar lék nánast allan leikinn og var langmarkahæstur með ellefu mörk úr fimmtán skotum auk þess sem hann átti eina stoðsendingu.

Gísli lék 25 mínútur en náði á þeim tíma að skora sjö mörk úr þrettán skotum auk þess að gefa þrjár stoðsendingar.

Ómar og Gísli skoruðu því 18 af 31 marki Magdeburg í kvöld eða 58 prósent markanna.

Magdeburg er næstefst í deildinni með 20 stig eftir ellefu leiki, stigi á eftir toppliði Kiel en með leik til góða. Lemgo er í 4. sæti með fjórtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×