Sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Eiður Þór Árnason skrifar 30. október 2026 20:42 Gheorghe segir að hópur sendla vinni nú að því að stofna samtök Wolt-sendla í von um að geta farið í lögmætt verkfall. WOLT Talsmaður Wolt-sendla fordæmir hótanir í garð starfsfólks fyrirtækisins og býður fram aðstoð sína. Samskiptastjóri Wolt á Íslandi segir búið að tilkynna hótanirnar sem hafi allar verið nafnlausar til lögreglu. Þá hafi starfsfólk heimsendingarþjónustunnar einnig orðið fyrir „ágengum ummælum“ af hálfu nokkurra Wolt-sendla. Sendlarnir boða stofnun samtaka og hyggjast efna til verkfalls að óbreyttu. „
Ég og ökumennirnir stöndum með Wolt í tengslum við þessar hótanir. Ef við getum hjálpað á einhvern hátt þá er ég tilbúinn í það. Ef þau hafa einhverjar vísbendingar eða eitthvað sem hægt er að deila þá er ég til í að hjálpa þeim að finna þá einstaklinga sem standa að baki þessu vegna þess að þetta á ekki að eiga sér stað,“ segir Gheorghe Mihai Cacaliceanu sem var kjörinn talsmaður Wolt-sendla á Íslandi á fundi þeirra með fulltrúum Eflingar. Hann hafi sömuleiðis tjáð fulltrúum Wolt þetta á fundi með þeim í vikunni. „Ég læt svona hegðun ekki líðast. Ef þetta er einhver úr okkar hópi þá á viðkomandi ekki að haga sér með þeim hætti sem Wolt greindi frá. Ég stend eindregið með Wolt hvað varðar svona hegðun, því við erum fullorðið fólk og venjulegar manneskjur. Við eigum að taka á málinu með viðeigandi hætti og enginn ætti að finna fyrir ótta eða þola hótanir fyrir að sinna starfi sínu.“ Vilji gera hlutina almennilega og fara í lögmætt verkfall Gheorghe segir næstu skref vera að ganga frá þeirri pappírsvinnu sem þurfi til þess að koma formlega á fót samtökum Wolt-sendla á Íslandi. Sendlarnir eru verktakar en ekki starfsmenn Wolt og tilheyra því ekki stéttarfélagi með formlegum hætti líkt og flestir starfsmenn á vinnumarkaði. Gheorghe sakar fulltrúa fyrirtækisins um rangfærslur. „Þeir halda því fram að þeir borgi okkur mjög vel og að greiðslurnar til okkar séu að lækka vegna þess að þeir hafi ráðið of marga bílstjóra. Þeir eru ekki samstíga þar því að Christian [Kamhaug, samskiptastjóri Wolt á Íslandi og í Noregi] og Jóhann [Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi] sögðu að þeir hefðu ráðið of marga bílstjóra en þessir aðilar sem komu frá Finnlandi og Noregi sögðu að þeir hefðu ekki ráðið neina bílstjóra. Þannig að ég veit ekki lengur hverjum ég á að trúa. Þess vegna gengum við öll út af fundinum.“ „Við gengum út 23 talsins og aðeins sex eða sjö manns voru eftir á fundinum en ekki helmingur hópsins eins og greint hefur verið frá. Við vorum 30 bílstjórar, 23 gengu út og sjö urðu eftir á fundinum,“ bætir Gheorghe við. „Við erum með WhatsApp-hóp og við erum 97 í hópnum núna. Níutíu prósent þeirra eru mjög reið yfir ástandinu, svo þau lögðu til verkfall. Ég sagði að við þyrftum að gera þetta almennilega, við þyrftum að gera þetta eins friðsamlega og hægt er, við þyrftum að fá leyfi frá borginni og við þyrftum að vera á öruggum stað svo við sköpum ekki ringulreið á götunum eða hefðum áhrif á önnur fyrirtæki heldur aðeins fyrirtækið sem við erum að berjast gegn.“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ræddi málefni Wolt-sendla í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Klippa: Efling stendur með sendlum hjá Wolt í þeirra kjarabaráttu
Heimsendingarþjónusta Kjaramál Tengdar fréttir Wolt kærir hótanir til lögreglu Samskiptastjóri Wolt á Íslandi segir starfsfólk heimsendingarþjónustunnar hafa orðið fyrir „ágengum ummælum“ af hálfu nokkurra Wolt-sendla. Nafnlausar hótanir hafa verið tilkynntar til lögreglu. Fundur sendla og forsvarsmanna var haldinn í vikunni. 30. október 2026 15:10 Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Wolt-sendlar á Íslandi gengu margir ósáttir af fundi með finnskum stjórnendum fyrirtækisins í dag. Talsmaður sendlanna segir þá hafa búist við því að geta rætt kröfur sínar en þess í stað hafi þeir fengið fyrirlestur um hvernig appið og algrímið virkaði. Hann vinnur nú að því í samstarfi við Eflingu að koma á fót eins konar samtökum Wolt-sendla í von um að geta skipulagt lögmætt verkfall. „Og það verður stórt verkfall,“ boðar hann. 28. október 2026 22:58 Kraumar enn í Wolt-sendlum Tugir sendla hjá fyrirtækinu Wolt komu saman á skrifstofu Eflingar í dag. Þeir fara fram á að lágmarksgreiðslur verði hækkaðar og skipuleggja aðgerðir. 19. október 2026 14:55 Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
Wolt kærir hótanir til lögreglu Samskiptastjóri Wolt á Íslandi segir starfsfólk heimsendingarþjónustunnar hafa orðið fyrir „ágengum ummælum“ af hálfu nokkurra Wolt-sendla. Nafnlausar hótanir hafa verið tilkynntar til lögreglu. Fundur sendla og forsvarsmanna var haldinn í vikunni. 30. október 2026 15:10
Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Wolt-sendlar á Íslandi gengu margir ósáttir af fundi með finnskum stjórnendum fyrirtækisins í dag. Talsmaður sendlanna segir þá hafa búist við því að geta rætt kröfur sínar en þess í stað hafi þeir fengið fyrirlestur um hvernig appið og algrímið virkaði. Hann vinnur nú að því í samstarfi við Eflingu að koma á fót eins konar samtökum Wolt-sendla í von um að geta skipulagt lögmætt verkfall. „Og það verður stórt verkfall,“ boðar hann. 28. október 2026 22:58
Kraumar enn í Wolt-sendlum Tugir sendla hjá fyrirtækinu Wolt komu saman á skrifstofu Eflingar í dag. Þeir fara fram á að lágmarksgreiðslur verði hækkaðar og skipuleggja aðgerðir. 19. október 2026 14:55