Innlent

Flóttamannaleið lokuð vegna bílveltu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Slökkvilið er enn á vettvangi.
Slökkvilið er enn á vettvangi. Vísir/Vilhelm

Flóttamannaleið við Vífilsstaðavatn er lokað vegna bílveltu. Einn var í bílnum en hann slasaðist ekki mikið samkvæmt slökkviliði. Samkvæmt Vegagerðinni hefur verið vart við hálkubletti hér og þar um borgina og eru vegfarendur beðnir um að aka varlega.

Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir dælubíl slökkviliðs enn á vettvangi. Hann segir betur hafa farið en á horfðist.

Enginn hafi verið fluttur á slysadeild. Finna megi upplýsingar um það hvenær vefurinn opni aftur á vef Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×