Fótbolti

Lands­liðs­maður í frí hjá fé­lagi sínu vegna per­sónu­legra á­stæðna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daníel Leó Grétarsson í leik með íslenska landsliðinu á móti Eistlandi í síðasta glugga.
Daníel Leó Grétarsson í leik með íslenska landsliðinu á móti Eistlandi í síðasta glugga. Vísir/Anton Brink

Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Daníel Leó Grétarsson verður ekki með danska félaginu AGF á næstunni af persónulegum ástæðum. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Félagið segir að Daníel hafi fengið leyfi til að sinna persónulegum málum.

„Daníel þarf að sinna fjölskyldumálum og við styðjum hann að sjálfsögðu heils hugar í því. Við hlökkum til að sjá hann aftur þegar tíminn er réttur,“ sagði Carsten V. Jensen, knattspyrnustjóri AGF.

Daníel kom til AGF frá Sønderjyske í félagaskiptaglugganum í sumar og hefur hingað til leikið tíu deildarleiki í hvítu treyjunni.

Hann er 31 árs gamall og hefur verið fastamaður í landsliðinu undanfarin ár. Daníel var í byrjunarliðinu í þremur af fjórum leikjum Íslands í síðasta glugga og kom inn á sem varamaður í hálfleik í þeim fjórða.

Daníel er kominn með 35 leiki fyrir íslenska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×