Körfubolti

„Lið sem enginn vill mæta núna“

Sindri Sverrisson skrifar
Nablinn tekur liðin í Bónus-deildinni engum silkihönskum en var þó á jákvæðu nótunum í nýjasta þætti Körfuboltakvölds Extra.
Nablinn tekur liðin í Bónus-deildinni engum silkihönskum en var þó á jákvæðu nótunum í nýjasta þætti Körfuboltakvölds Extra. Sýn Sport

Andri Már Eggertsson, Nablinn, fékk loksins hjálp við að reima á sig svuntuna áður en hann mætti „á grillið“ í Körfuboltakvöldi Extra og fór yfir fimm bestu liðin í Bónus-deild karla í körfubolta. Nýliðar eru í þeim hópi, „lið sem enginn vill mæta núna“ að mati Andra.

Körfuboltakvöld Extra er á þriðjudagskvöldum á Sýn Sport Ísland og einn af föstu liðunum í þættinum er „Nablinn á grillinu“.

Í þetta sinn beindi Andri sjónum sínum að fimm bestu liðum Bónus-deildarinnar, eftir að hafa skoðað þau fimm verstu í síðustu viku, og má sjá afraksturinn hér að neðan.

Klippa: Nablinn á grillinu með fimm bestu liðin

Bónus-deildin heldur áfram í kvöld og þar fá liðin nýtt tækifæri til að sýna Nablanum að þau séu í hópi þeirra fimm bestu í deildinni.

Fimmtudagur:

  • 19.10 Skiptiborðið á Sýn Sport Ísland
  • 19.15 Keflavík – Höttur
  • 19.15 Tindastóll – Álftanes
  • 19.15 KR – Sindri
  • 19.15 Stjarnan – ÍR
  • 21.15 Tilþrifin á Sýn Sport Ísland

Föstudagur:

  • 19.00 Valur – Ármann
  • 19.30 Grindavík – Njarðvík
  • 21.25 Bónus Körfuboltakvöld á Sýn Sport Ísland



Fleiri fréttir

Sjá meira


×