Innlent

Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ

Lovísa Arnardóttir skrifar
ESA grunar Sjúkratryggingar um ríkisaðstoð.
ESA grunar Sjúkratryggingar um ríkisaðstoð. Vísir/Egill

Öllum starfsmönnum Hjálpartækjamiðstöðvar var sagt upp í gær. Sjúkratryggingar hætta eigin rekstri á verkstæðaþjónustu vegna hjálpartækja og leggja því niður störfin. Fjallað var um málið á vef RÚV í gær en þar kom fram að ákvörðunin væri liður í nýrri stefnu og skipulagi og hún hefði áhrif á sjö stöðugildi.

Þar kom einnig fram að Sjúkratryggingar muni útvista verkefnum miðstöðvarinnar til annarra verkstæða. Í tölvupósti sem RÚV vísar til frá Sigurði Helgasyni forstjóra SÍ segir að hann hafi rætt við verkstæðin um að bjóða starfsfólkinu sem hann sagði upp sambærileg störf.

Gert sé ráð fyrir að flestir muni starfa áfram hjá stofnuninni meðan á yfirfærslu verkefnanna stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×