Íslenski boltinn

„Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“

Sindri Sverrisson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson mætti spariklæddur og fór yfir málin eftir annað stórkostlegt tímabil með Víkingi.
Gylfi Þór Sigurðsson mætti spariklæddur og fór yfir málin eftir annað stórkostlegt tímabil með Víkingi. Sýn Sport

„Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar.

Gylfi fór yfir ýmislegt í lokaþætti Stúkunnar um helgina og talaði meðal annars um það hvernig ýmis ummæli Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR og nú markametshafa í efstu deild, hefðu virkað eins og bensín á tankinn hjá Víkingsliðinu. Allt tal um að Víkingar kæmu haltrandi inn í lokakafla mótsins og að KR væri besta liðið hefði í raun gagnast Víkingi.

„Já, ég held það. Ég held að þetta hafi virkað öfugt við það sem hann vonaðist til. Við erum það sterkir í hausnum og með það mikið hugarfar í að vinna að þetta gerði okkur bara enn einbeittari í að klára dæmið. Ég held að það þýði ekkert að vera með einhverja hugarleiki gegn okkur. Þetta gaf okkur bara aukabensín til að klára dæmið,“ sagði Gylfi en viðtalið við hann má sjá hér að neðan.

Klippa: Stúkan - Gylfi bestur og mætti í settið

Gylfi veitti góða innsýn inn í huga keppnismannsins þegar hann greindi frá því að aðeins nokkrum klukkutímum eftir að hafa orðið Íslandsmeistari, annað árið í röð, hefði hann verið farinn að hugsa um þriðja titilinn á næsta ári.

„Hræðslan við að tapa… þú vilt ekki tapa. Það er það sem lætur mann fara í gegnum allt sem við þurfum að gera – sjúkraþjálfun, hlaup, styrktaræfingar eða aðrar æfingar. Það er það sem heldur manni gangandi,“ sagði Gylfi og ræddi aðeins um áföllin sem Víkingar urðu fyrir á árinu. 

„Vá hvað mig langar að gera þetta þrisvar í röð“

Víkingar misstu meðal annars aðalmarkvörð sinn, Ingvar Jónsson, út vegna veikinda en einnig aðra afar öfluga leikmenn vegna meiðsla. Gylfi segir þetta hafa gert áfallið við að detta út úr Evrópukeppni minna:

„Það var svo mikið af meiðslum í hópnum, erfiðum augnablikum, og ég held að það hafi dempað aðeins höggið. Í kjölfarið er svo bara einn leikur í viku og það er gríðarlegur munur að spila á vikufresti eða tvo leiki í viku. Við lærðum mikið af síðasta tímabili, gerðum bara svipaða hluti og virkuðu þá og keyrðum á deildina.“

Gylfi segir ekkert því til fyrirstöðu að hægt sé að sækja fleiri titla á næsta ári. Kúltúrinn sé einfaldlega þannig í Víkinni:

„Nokkrum klukkutímum eftir að við unnum leikinn á móti KR og urðum Íslandsmeistarar var ég strax farinn að hugsa: „Vá hvað mig langar að gera þetta þrisvar í röð.“ Þetta er svo skrýtin tilfinning. Það eina sem þú hugsar um er að verða Íslandsmeistari, svo vinnurðu deildina og nokkrum klukkutímum síðar er maður farinn að hugsa um næsta titil. Farinn að breyta æfingum og styrkja sig fyrir næsta tímabil,“ sagði Gylfi en hægt er að horfa á viðtalið allt hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×