Íslenski boltinn

Harma á­kvörðun Hattar

Sindri Sverrisson skrifar
FHL lék í fyrrasumar í Bestu deildinni, fyrst liða af Austurlandi síðan árið 1994, en féll þaðan og spilaði í Lengjudeildinni í sumar á því sem virðist hafa verið kveðjutímabil liðsins.
FHL lék í fyrrasumar í Bestu deildinni, fyrst liða af Austurlandi síðan árið 1994, en féll þaðan og spilaði í Lengjudeildinni í sumar á því sem virðist hafa verið kveðjutímabil liðsins. vísir/Guðmundur

Stjórn og framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Austfjarða í Fjarðabyggð hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Hattar á Egilsstöðum um að slíta samstarfinu um kvennalið FHL er hörmuð.

Reikstrarfélag Hattar sendi frá sér fréttatilkynningu fyrir helgi og sagðist hafa sent KFA bréf með ósk um að slíta samstarfi félaganna.

KFA varð til við sameiningu Leiknis Fáskrúðsfjarðar og Fjarðabyggðar og í samstarfi við Hött hafa félögin teflt fram liði FHL (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir) síðustu ár. 

Liðið náði meðal annars þeim merka áfanga að vinna Lengjudeildina með sannfærandi hætti árið 2024 og því lék kvennalið frá Austurlandi í efstu deild í fyrrasumar í fyrsta sinn frá árinu 1994 þegar Höttur spilaði þar. 

FHL féll hins vegar strax aftur í Lengjudeildina og endaði þar í 6. sæti á nýafstaðinni leiktíð og nú vilja forráðamenn Hattar að FHL heyri sögunni til en spila í Lengjudeildinni undir merkjum Hattar á næstu leiktíð.

„Ástæður uppsagnarinnar eru meðal annars þær að meginþorri leikmanna kemur frá Hetti og nú er lag að spila meistaraflokki kvenna undir merkjum Hattar. Samkvæmt aðildarsamningi RH og KFA tekur Höttur sæti félagsins við slit og mun því leika í Lengjudeildinni að ári,“ sagði í tilkynningu Hattar rekstrarfélags.

KFA hefur nú sent frá sér tilkynningu og þar segir að fyrir ári síðan hafi verið undirritaður samstarfssamningur RH og KFA um FHL sem gilda hefði átt út leiktíðina 2028. Engin uppsagnarákvæði hafi verið í samningnum.

„Stjórn og framkvæmdastjóri KFA harma að ekki hafi verið óskað eftir samtali áður en ósk um slit á félaginu barst og telur að þessi ákvörðun Hattar hafi gríðarlega neikvæð áhrif á kvennaknattspyrnu á Austurlandi,“ segir í tilkynningu KFA.

Þar segir einnig að KFA hafi aldrei farið fram á að Fjarðabyggðarhöll yrði nýtt undir æfingar og leiki heldur sé það eingöngu ákvörðun þjálfara og stjórnar FHL. Þá segja KFA-menn að Fjarðabyggð, fyrirtæki og félög í Fjarðabyggð hafa „komið myndarlega að rekstri FHL frá upphafi“ og að rekstur FHL hafi „að meirihluta verið fjármagnað þaðan“.

Stjórn KFA kveðst nú vinna hörðum höndum að því að móta sína framtíðarsýn en að ljóst sé að félagið muni áfram styðja og styrkja veg kvennaknattspyrnu eins og áður.

Fréttatilkynning KFA í heild sinni:

Fimmtudaginn 22. október 2026 kl. 16:02 barst framkvæmdastjóra og formanni KFA tölvupóstur frá Rekstrarfélagi Hattar (RH). Efni tölvupóstsins var undirritað bréf þar sem RH sagði upp samstarfssamningi RH og KFA um FHL. Þessi samstarfssamningur var undirritaður 4. október 2025. Stjórn FHL hafði óskað eftir lengri samningi og úr varð að samið var til þriggja ára (3 keppnistímabil). Engin uppsagnarákvæði voru í samningnum. Áður fyrr hafði verið samið til eins árs í senn.

RH óskaði eftir að uppsagnarbréfið yrði lesið upp á aðalfundi FHL sem halda átti klukkan 20:00 22. október 2026 eða tæpum fjórum klukkustundum eftir að bréfið barst KFA. Þegar aðalfundur FHL hófst var honum frestað þar sem samþykkja þarf slit FHL á aðalfundi og þurfa þá að liggja fyrir gögn sem voru ekki tilbúin.

FHL var stofnað árið 2020 af Fjarðabyggð, Hetti og Leikni. Árið 2022 tók KFA við af Fjarðabyggð og Leikni og síðan þá hefur FHL verið rekið til helminga af Hetti og KFA.

FHL náði þeim frábæra árangri að komast í Bestu deildina árið 2025 og hefur skapað sér nafn á Íslandi í kvennaknattspyrnu.

Stjórn og framkvæmdastjóri KFA harma að ekki hafi verið óskað eftir samtali áður en ósk um slit á félaginu barst og telur að þessi ákvörðun Hattar hafi gríðarlega neikvæð áhrif á kvennaknattspyrnu á Austurlandi.

Í fréttatilkynningu frá RH kemur fram að ástæða uppsagnar sé aðallega sú að flestar stelpur í liðinu komi frá Hetti og að ferðakostnaður þeirra sé mikill að æfa og keppa í Fjarðabyggðarhöllinni. KFA hefur aldrei farið fram á að æft og spilað sé í höllinni. Það er eingöngu ákvörðun þjálfara og stjórnar FHL. Sannlega eru fleiri stelpur frá Hetti en KFA í FHL-hópnum en samt sem áður átti KFA 51 leikmann í byrjunarliði á Íslandsmótinu (26%) á móti 42 leikmönnum frá Hetti (21%). Erlendir leikmenn byrjuðu 105 leiki (53%).

KFA, Fjarðabyggð, fyrirtæki og félög í Fjarðabyggð hafa komið myndarlega að rekstri FHL frá upphafi og hefur FHL að meirihluta verið fjármagnað þaðan. KFA hefur sótt um samvinnustyrki til Fjarðabyggðar fyrir hönd FHL ásamt því að taka erlenda leikmenn, með dvalar- og atvinnuleyfi vegna íþróttaiðkunar, í vinnu í Fjarðabyggðarhöllinni og í þjálfun.

Stjórn KFA vinnur nú hörðum höndum að framtíðarsýn kvennaknattspyrnu hjá félaginu og KFA mun áfram styðja og styrkja veg kvennaknattspyrnu eins og áður.

Fjarðabyggð, 26. október 2026.

Stjórn og framkvæmdastjóri KFA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×