Innlent

Stuðningur allt of lítill

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Loftmynd af fangelsinu á Hólmsheiði.
Loftmynd af fangelsinu á Hólmsheiði. Vísir/Vilhelm

Framkvæmdastjóri Okkar heims segir stuðning við börn sem eiga foreldri í fangelsi alltof stutt kominn hér á landi. Börnin upplifi oft mikla skömm og einangrist sem geti dregið dilk á eftir sér.

Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá 400 þúsund krónum til 2,5 milljóna.

Meðal styrkþega er Okkar heimur sem er félag fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda en það tekur við styrkjum fyrir tvö verkefni. Eitt verkefnið er samstarfsverkefni með Afstöðu, félagi fanga, og er hugsað fyrir börn sem eiga foreldra í fangelsi en annað verkefnið er skapandi sjálfstyrkingarnámskeið fyrir ungmenni sem eiga foreldra sem glíma við geðrænan vanda eða fíknivanda.

Sigríður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Okkar heims, segir styrkinn skipta sköpum.

„Eins og með þessi verkefni þá tryggir það að við getum farið algjörlega af stað með það og klárað verkefnið sem er náttúrulega stórkostlegt. Þetta í raun og veru kemur svolítið út frá því í starfinu okkar að við höfum starfað mikið með ungmennum sem eiga foreldra sem eru að glíma við geð- eða fíknivanda. Það sem þau eiga sameiginlegt er að þau eru að fóta sig í lífinu. Þau eru svona að fara upp í meira sjálfstæði og kannski með svolítið brotið bakland og ýmis áföll að baki.“

Sjálfstyrkingarnámskeiðið hefur borið góðan árangur síðustu ár en verkefnið sem varðar börn fanga er nýtt af nálinni og löngu tímabært að mati Sigríðar.

„Mjög mikið af þeim börnum sem eiga foreldra í fangelsi fá ekki þann stuðning sem þau þurfa. Það náttúrulega fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi. Þessi börn virðast á einhverju svæði sem er svolítið týnt á Íslandi. Ég held að þau falli rosalega mikið á milli kerfa.“

Norðurlöndin séu komin mun lengra í stuðningi við umræddan hóp barna.

„Það sem er kannski samnefnari í rannsóknum á þessum börnum er að þau upplifa sig eitt í heiminum. Það er svo sorglegt. Þau upplifa að það eru engin önnur börn í þessari stöðu og þau eru sér á báti því við tölum ekkert um þetta í skólanum.“

Sagði Sigríður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Okkar heims. Það sé gömul saga og ný að það vanti fjármagn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×