Sport

„Mark­mið hjá þessum klúbbi að vinna sem flesta titla“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Gylfi ásamt Ingvari Jónssyni og Oliver Ekroth lyfta skildinum á loft.
Gylfi ásamt Ingvari Jónssyni og Oliver Ekroth lyfta skildinum á loft.

Gylfi Þór Sigurðsson fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með Víkingi annað árið í röð eftir leik liðsins gegn Fram í kvöld. Hann sagðist þegar vera farinn að hlakka til næsta tímabils enda stefnan sett á þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð og betri árangur í Evrópukeppni.

„Tilfinningin er bara frábær. Auðvitað gaman að hafa klárað þetta á móti KR fyrir einhverjum, hvað, fjórum, fimm, sex vikum. Ég er bara gríðarlega ánægður með tímabilið,“ sagði Gylfi skömmu áður en hann lyfti Íslandsmeistaraskildinum á loft.

Gylfi var einnig valinn besti leikmaður ársins en það eru leikmenn deildarinnar sem kusu.

Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ afhenti Gylfa Flugleiðahornið svokallaða sem leikmaður ársins hefur fengið að passa upp í eitt ár frá því á níunda áratugnum.

„Það er búið að ganga mikið á þannig að við erum bara gríðarlega ánægðir að hafa unnið tvö ár í röð og nú byrjar bara undirbúningurinn fyrir næsta tímabil.“

Gylfi fór ekki leynt með það að stefnan væri sett á þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð á næsta tímabili.

„Það er bara alltaf markmið hjá þessum klúbbi að vinna sem flesta titla. Það breytist ekkert núna þótt við séum búnir að vinna tvo í röð. Markmiðið verður að vinna aftur næsta tímabil eins og hjá mörgum öðrum liðum þannig að það er bara mikil vinna fram undan, auðvitað smá hvíld en ég er bara byrjaður að hlakka til næsta tímabils.“

Víkingar náðu ekki markmiði sínu í Evrópu á þessu tímabili en meiðsli lykilleikmanna kunna að hafa sett strik í reikninginn. Gylfi segir að markmiðið verði óbreytt á næsta tímabili.

„Það var eitt af markmiðunum hjá okkur að komast í riðlakeppnina í Evrópu. Það tókst ekki en það verður bara sama markmiðið á næsta tímabili aftur. Auðvitað er það erfitt en það eru há markmið hjá klúbbnum og vonandi verður árangurinn betri í Evrópu á næsta ári.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×