Bíó og sjónvarp

Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Konstantín segist ekki muna eftir öðru eins.
Konstantín segist ekki muna eftir öðru eins.

Framkvæmdastjóri Smárabíós segist varla hafa undan við að svara fyrirspurnum um það hvenær heimildarmyndin You can See Everything mætir í kvikmyndahúsin. Hann segir allar líkur á því að myndin verði sýnd hér á landi, von sé á svörum í vikunni vegna réttindamála en framkvæmdastjórinn segist ekki muna eftir annarri eins eftirvæntingu fyrir einni mynd. Myndin muni líklega fara í kvikmyndahús í lok nóvember á Íslandi.

Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehearsal. Í myndinni fylgir hann eftir svikahrappnum Elizabeth Holmes áður en hún fer í fangelsi vegna svika hennar við fjárfesta í Theranos-skandalnum svokallaða. Fyrirtækið sérhæfði sig í meintri byltingarkenndri tækni við blóðprufur.

Kvikmyndin hefur vakið gríðarlega athygli og fær sem dæmi fimm stjörnur hjá kvikmyndagagnrýnenda Guardian og er þegar þetta er skrifað með 99 prósenta einkunn á Rotten Tomatoes. Varla hefur verið hægt að opna Facebook hópa á Íslandi um kvikmyndir án þess að sjá spurninguna: „Hvenær verður You can See Everything sýnd á Íslandi?!“

Einn þeirra sem veltir þessu fyrir sér er ofurstjarnan Vilhelm Neto sem spurði þessarar spurningu á Facebook fyrir rúmri viku síðan og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Sjötíu komment og yfir tvöhundruð viðbrögð við færslunni, þar sem allir veltu því sama fyrir sér, hvenær getum við fengið að sjá þessa kvikmynd í bíó á Íslandi?

„Ég veit nákvæmlega að hverju þú ert að fara að spyrja mig,“ segir Konstantín Mikaelsson framkvæmdastjóri Smárabíós í samtali við Vísi. „Hún verður hundrað prósent sýnd, málið er bara, eins og ég var að útskýra fyrir öðrum blaðamanni, að við erum umboðsaðili fyrir Soný á Íslandi og þeir keyptu réttinn að myndinni fyrir ákveðin lönd. Það sem er alltaf leiðinlegt er að þeir kaupa réttinn fyrir Skandinavíu og Ísland er ekki partur af Skandinavíu, heldur Norðurlöndunum svo þeir voru ekki vissir hvort Ísland væri inni eða ekki. Þessi réttindamál eru alltaf svo flókin svo þeir vildu vera alveg hundrað prósent vissir og lofuðu að láta mig vita í þessari viku.“

Konstantín segist ekki muna eftir annarri eins eftirvæntingu fyrir einni kvikmynd, hvað þá heimildarmynd. Þá hafi ekkert dregið úr spennunni hjá honum sjálfum að heyra hans menn hjá Sony tala um myndina.

„Þeir voru bara flabbergasted og töluðu um að þetta væri eitthvað allt annað en venjuleg heimildarmynd. Þetta er gríðarlega spennandi og þeir eru að búast við því að það muni margir vilja sjá myndina, hún var sýnd í takmörkuðu upplagi í Bandaríkjunum í síðustu viku og er núna að fara í almenna sýningu á sama tíma og Clayface frá DC Studios og núna er talað um að hún gæti jafnvel skákað henni.“

Hvað eruð þið búin að fá margar fyrirspurnir um myndina?

„Ég held þetta séu svona tuttugu til þrjátíu fyrirspurnir, til mín og skrifstofunnar, fólk hefur verið að hringja og senda tölvupósta, alveg í tonnatali. Ég er búinn að fá símtöl frá furðulegasta fólk, það er ofsalega gaman að þessu. Bíóbransinn hefur átt undir höggi að sækja en þetta ár er búið að vera algjörlega æðislegt og það segir sitt þegar fólk er spennt fyrir þriggja klukkustunda langri heimildarmynd.“

Veistu hvenær þið mynduð sýna hana ef af verður?

„Við erum að horfa á 26. nóvember. Því miður þá er þetta þriggja tíma löng mynd og það þarf að vanda til verka með þýðingar, það eru allir að flýta sér, en þetta er dagsetningin sem við erum að horfa til eins og staðan er í dag,“ segir Konstantín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.