Innlent

Loka öllum síðunum vegna öryggisgalla

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Háskóli Íslands lokaði öllum síðunum.
Háskóli Íslands lokaði öllum síðunum. Vísir

Lokað hefur verið fyrir allar vefsíður Háskóla Íslands vegna öryggisgalla í PHP hugbúnaðarkerfi þeirra. Gallinn hefur áhrif á síður víðs vegar um heiminn.

Allar vefsíður Háskóla Íslands, þar á meðal Uglan, sem er innra kerfi nemenda og kennara, liggja niðri vegna lokunarinnar. Öryggisstofnanir víða í Evrópu hafa mælt með lokun kerfa sem byggja á PHP, þar á meðal CERT-IS á Íslandi.

Á vefsíðu CERT-IS segir að um sé að ræða tvo alvarlega veikleika í PHP sem geta leyft fjarkeyrslu kóða á vefþjónum án auðkenningar. Uppfærsla kom frá PHP-teyminu rétt fyrir klukkan tvö og eru allir sem byggja vefi sína á PHP hvattir til að uppfæra um leið og lagfæringin er birt.

Í frétt BBC segir að einnig hafi verið lokað tímabundið fyrir vefsíður finnskra og hollenskra stjórnvalda vegna gallans. Þar kemur fram að PHP knýi áfram vefi sem byggja á WordPress, Drupal, Joomla og Magento. Notkunin á tækninni sé útbreidd og geti legið að baki opinberum vefsíðum, vefumsjónarkerfum og fleiru án þess að fyrirtækið eða stofnunin sem notar það viti af því.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×