Lífið

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vestur­bæ

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Eva Katrín Baldursdóttir og Ragnar Jón Hrólfsson hafa sett íbúð sína í Vesturbæ á sölu.
Eva Katrín Baldursdóttir og Ragnar Jón Hrólfsson hafa sett íbúð sína í Vesturbæ á sölu.

Tískudrottningin Eva Katrín Baldursdóttir og eiginmaður hennar Ragnar Jón Hrólfsson hafa sett íbúð sína að Reynimel 92 á sölu. Íbúðin er 94,2 fermetrar og ásett verð 89,9 milljónir. 

Eva Katrín er annar eiganda tískuverslunarinnar Andrá og Ragnar Jón er fréttamaður á Rúv. 

„Eftir 9 æðisleg ár er komin tími til að breyta til. Tímum varla að fara því við eigum bestu nágranna ever,“ skrifar Eva Katrín í færslu á Facebook og deilir því að opið hús sé í dag. 

Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2017 og er með þremur svefnherbergjum. 

Svartir og hvítir veggir í opinni stofu.LIND
Uppgert baðherbergi með fallegum flísum.LIND
Björt íbúð á fyrstu hæð í blokk.LIND
Stórir gluggar og opið eldhús. Listaverkið vinstra megin við gluggann eftir Loja Höskuldsson tekur sig vel út. LIND
Rúmgott hjónaherbergi.LIND
Eldhúsið var gert upp árið 2017. LIND

Hér má nálgast nánari upplýsingar um eignina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.