Viðskipti innlent

Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical

Samúel Karl Ólason skrifar
Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical.
Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical. Vísir/Vilhelm

Embla Medical, móðurfélag Össurar, hagnaðist um þrjá milljarða króna á þriðja fjórðungi ársins. Það er aukning um nítján prósent, borið saman við sama tímabil í fyrra. Vöxturinn er að miklu leyti til kominn vegna mikillar sölu stoðtækja í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku, samkvæmt forstjóra Emblu.

Í uppgjörinu segir að sala á þriðja ársfjórðungi hafi verið um 31 milljarður króna, sem samsvari fimm prósenta heildarvexti og fjögurra prósenta innri vexti. Þá hafi innri vöxtur á stoðtækjum verið sjö prósent en vöxtur í spelkum og stuðningsvörum verið tvö prósent. Tekjur af þjónustu breyttust ekki milli ára.

Rekstrarhagnaður Emblu fyrir afskriftir (EBITDA) var sjö milljarðar króna en það er sagt jafngilda 22 prósenta EBITDA-framlegð sem er óbreytt frá þriðja ársfjórðungi í fyrra.

Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar hér á vef Emblu. Þá má sjá frétt um uppgjör annars ársfjórðungs hér.

Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical, segir í yfirlýsingu frá félaginu að þjónustutekjur hafi verið undir væntingum það sem af er ári. Það sé vegna þess að verið sé að vinna markvisst að bættri þjónustu við skjólstæðinga fyrirtækisins.

„EBITDA-framlegð var áfram sterk, 22%, og óbreytt frá þriðja ársfjórðungi 2025. Kostnaðaraðhald vóg upp á móti tímabundnum kostnaði vegna breytinga á rekstrarfyrirkomulagi smærri framleiðslustöðva, sem miða að því að bæta arðsemi til framtíðar. Í ljósi afkomu fyrstu níu mánaða ársins og væntinga fyrir fjórða ársfjórðung höfum við uppfært fjárhagsáætlun ársins í ~5% innri vöxt og ~21% EBITDA-framlegð. Áherslan er áfram skýr, að bæta hreyfanleika og lífsgæði fólks um allan heim.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×