Innlent

Halla kjörin fyrsti vara­for­seti ASÍ

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Halla Gunnarsdóttir er fyrsti varaforseti ASÍ.
Halla Gunnarsdóttir er fyrsti varaforseti ASÍ. vísir/anton brink

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, var kjörin fyrsti varaforseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sambandsins sem fer fram á Hilton Reykjavík.

Halla hafði því betur í baráttunni gegn Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, sem gaf einnig kost á sér í embættið. Halla hlaut 182 atkvæði en Sólveig 108. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Mikil spenna hafði ríkt um kjör fyrsta varaforseta vegna deilna á milli Sólveigar og Höllu sem hafa tekið þó nokkuð pláss í umfjölluninni undanfarið. 

Miðstjórn ASÍ lagði til að varaforsetum yrði fækkað úr þremur í einn en sú tillaga var naumlega felld í gær. 60 prósent þingfulltrúa greiddu atkvæði með tillögunni en tvo þriðju atkvæða þurfti til að samþykkja tillöguna.

Sólveig sagði tillöguna vera tilraun Höllu til að sölsa undir sig völd innan ASÍ og sagði það til skoðunar að Efling myndi draga sig úr sambandinu. Halla hafnaði alfarið ásökunum Sólveigar um valdabrölt og sagði á dögunum að hún myndi draga framboð sitt til fyrsta varaforseta til baka ef Arnaldur Grétarsson myndi verða valinn forseti ASÍ.

Eins og var greint frá fyrr í dag var það Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, sem bar sigur úr býtum og tekur við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ. Halla dró því ekki framboð sitt til baka og fagnar sigri í dag. 

Ekki liggur fyrir hvort Sólveig anna gefi kost á sér í embætti annars varaforseta og þá á eftir að greiða atkvæði um hver verður annar og þriðji varaforseti sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×