Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Atli Ísleifsson skrifar 16. október 2026 11:36 Landið allt er undir þegar kemur að viðvörunum Veðurstofunnar. Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir á landinu öllu, en þær taka ýmist gildi á morgun laugardag eða á sunnudag. Spáð er sunnan hvassviðri eða stormi annað kvöld á suðvestan- og vestanverðu landinu. Gul viðvörun hefur svo verið gefin út fyrir landið allt seinni partinn á sunnudag.
Á vef Veðurstofunnar má sjá að á höfuðborgarsvæðinu verði viðvörun í gildi milli 15 og 20 á morgun. Á vestanverðu landinu tekur gul viðvörðun gildi klukkan 11 en milli 16 og 20 á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á Breiðafjarðarsvæðinu. Þar er spáð suðaustan og sunnan 18 til 28 m/s, hvassast á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geta farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki. Gul viðvörun verður í gildi á landinu öllu seinni partinn á sunnudaginn þar sem útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag, ásamt því sem voldug hæð situr yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri Skandinavíu. Viðvörunin tekur gildi klukkan 15 á sunnudag og verður í gildi til klukkan 1, aðfararnótt mánudags. Á vef Veðurstofunnar segir að það sé því útlit fyrir að hvessi á öllu landinu og víða megi búast við sunnan og síðar suðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindhraði á bilinu 15-25 m/s). Líkur eru á mjög snörpum vindhviðum við fjöll, sem geta verið varasamar fyrir ökutæki. Lausamunir geta fokið. Einnig er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands. Viðvaranir Veðurstofunnar: Höfuðborgarsvæðið Sunnan hvassviðri (Gult ástand) 17. okt. kl. 15:00 – 20:00 Suðaustan og sunnan 13-20 m/s, hvassast í efri byggðum. Búast má við snörpum vindhviðum við háhýsi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu, talsverð úrkoma um tíma. Faxaflói Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand) 17. okt. kl. 14:00 – 21:00 Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu, talsverð úrkoma um tíma. Breiðafjörður Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand) 17. okt. kl. 11:00 – 16:00 Suðaustan og sunnan 15-23 m/s, hvassast á Snæfellsnesi. Þar geta vindhviður farið yfir 30 m/s, sem er varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu. Sunnan stormur eða rok (Appelsínugult ástand) 17. okt. kl. 16:00 – 20:00 Suðaustan og sunnan 18-28 m/s, hvassast á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geta farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki. Lausamunir fjúka líklega og möguleiki á staðbundnu foktjóni. Búast má við talsverðri rigningu. Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand) 17. okt. kl. 20:00 – 18 okt. kl. 00:00 Sunnan 15-23 m/s, hvassast á Snæfellsnesi. Þar geta vindhviður farið yfir 30 m/s, sem er varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu. Vestfirðir Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand) 17. okt. kl. 13:00 – 18. okt. kl. 00:00 Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu. Strandir og Norðurland vestra Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand) 17. okt. kl. 16:00 – 18 okt. kl. 00:00 Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu. Miðhálendið Sunnan stormur (Gult ástand) 17. okt. kl. 12:00 – 18. okt. kl. 03:00 Suðaustan og sunnan 18-28 m/s, hvassast norðan undir jöklum og mjög snarpar vindhviður. Varasamt ferðaveður. Búast má við rigningu, talsverð sunnatil. Allt Ísland Sunnan og suðvestan stormur (Gult ástand) 18. okt. kl. 15:00 – 19. okt. kl. 01:00 Útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag, ásamt því sem voldug hæð situr yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri Skandinavíu. Það er því útlit fyrir að hvessi á öllu landinu og víða má búast við sunnan og síðar suðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindhraði á bilinu 15-25 m/s). Líkur eru á mjög snörpum vindhviðum við fjöll, sem geta verið varasamar fyrir ökutæki. Lausamunir geta fokið. Einnig er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands.
Veður Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Sjá meira