Enski boltinn

Lét gamminn geisa og fær að heyra það

Aron Guðmundsson skrifar
Lisandro Martinez í leiknum í gær
Lisandro Martinez í leiknum í gær Vísir/Getty

Sparkspekingar hafa látið Lisandro Martinez, leikmann Manchester United, heyra það eftir að hann lét stór orð falla í viðtali í kjölfar 2-0 taps liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ummæli Martinez hafi verið skammarleg. 

Martinez lét yfirmenn sína hjá Manchester United heyra það eftir leik í gær og gagnrýndi hversu lítið liðið hefði verið styrkt milli tímabila með nýjum leikmönnum. 

Argentínumaðurinn sagðist búast við meiru, sér í lagi frá Jason Wilcox sem starfar sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Manchester United.

Byrjunin á tímabilinu hjá Manchester United hefur ekki verið góð og er mikil pressa komin á leikmenn og ekki síður knattspyrnustjórann Michael Carrick. Þó svo einhverjir kunni að hafa fagnað hreinskilni Martinez hefur hann fengið að heyra það hjá sparkspekingum.

„Þetta gerir engum gagn. Nú mun þetta viðtal vera fréttamatur næstu daga. Það mun allt snúast um þetta,“ sagði Jamie Carragher á CBS Sports í gær.

Jamie Carragher, sparkspekingurVísir/Getty

Stuðningsmenn Manchester United muni taka þessu fagnandi því vinsældir stjórnenda hjá félaginu séu yfirhöfuð ekki miklar.

„Agalegt að hann skuli tjá sig með þessum hætti. Hann talar um að síðasta tímabil hafi verið frábært hjá liðinu. Bara alls ekki. Það var knattspyrnustjóri rekinn á síðasta tímabili hjá Manchester United. Rekinn.“

Martinez og aðrir leikmenn félagsins eigi að líta í eigin barm,

„Hann er góður leikmaður, vann HM á sínum tíma, en hann hefur átt hræðilega byrjun á tímabilinu. Hræðilega, mjög slaka.“

Wayne Rooney, fyrrverandi leikmaður Manchester United, var heldur ekki hrifinn af viðtali Martinez. Hann hafi sýnt öðrum leikmönnum liðsins vanvirðingu.

„Ég tel hann hafa gengið of langt þarna. Það er knattspyrnustjórans að svara svona en svona mál eiga að vera innanbúðarmál.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×