Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran á­fanga

Aron Guðmundsson skrifar
Höskuldur í leik með Breiðabliki á yfirstandandi tímabili
Höskuldur í leik með Breiðabliki á yfirstandandi tímabili Vísir/Guðmundur

Tveir leikir fóru fram í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta í gær. Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur tóku á móti Skagamönnum og í Kópavogi mættust Breiðablik og Keflavík.

Víkingur Reykjavík hefur nú þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á meðan að ÍA eygir von um að tryggja sér fjórða sæti deildarinnar.

Liðin mættust undir flóðljósunum á Víkingsvelli í gær og fór svo að þau skildu jöfn, 2-2. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum Valdimars Þórs Ingimundarsonar og Arons Elís Þrándarsonar en Skagamenn unnu sig inn í leikinn. Markús Páll Ellertsson minnkaði muninn fyrir hlé og sjálfsmark Olivers Ekroth í upphafi síðari hálfleiks tryggði ÍA stig.

Klippa: Víkingur R. 2-2 ÍA

Breiðablik vann svo góðan 3-1 sigur á Keflavík þegar að liðin mættust á Eikarvelli. Blikar komust í stöðuna 2-0 með mörkum frá Viktori Karli Einarssyni og Jónatan Guðna Arnarssyni áður en Eiður Orri Ragnarsson klóraði í bakkann fyrir Keflavík, 2-1. 

Klippa: Breiðablik - Keflavík 3-1

Fyrirliði Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson kórónaði hins vegar flottan sigur Blika með marki á 90. mínútu. 

Þetta var 100. mark Höskuldar fyrir Breiðablik og hefur hann nú spilað 400 leiki fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×