Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Lovísa Arnardóttir skrifar 12. október 2026 07:20 Von er á næstu lægð á miðvikudag. Vísir/Anton Brink Skil fóru yfir landið í nótt með hvassviðri og stormi sem fara norður af landinu um hádegisbil. Í dag og á morgun er spáð skúrum en á miðvikudag er von á annari lægð og þá er spáð snjókomu fyrir norðan.
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægir síðan og léttir til þar. Í nótt fóru skil yfir landið með hvassviðri eða stormi og rigningu og fara þau norður af landinu um hádegisbil samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Í kjölfar þeirra er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum, en norðaustantil léttir til er líður á daginn. Hiti verður á bilinu sex til 12 stig. Á morgun er svo spáð suðvestlægri eða breytilegri átt, yfirleitt fremur hægum vindi en 8-13 m/s við suðausturströndina. Skúrir en úrkomulítið fram eftir degi á norðaustanverðu landinu. Samkvæmt hugleiðingum er svo von á næstu lægð á miðvikudag með norðan vonskuveðri og talsverðri úrkomu og búast má við snjókomu norðanlands seinnipartinn og um kvöldið. Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð vega á vef Vegagerðar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 4 til 9 stig að deginum, mildast syðst. Á miðvikudag: Norðaustan og síðar norðan 13-20 m/s og rigning eða slydda, sums staðar mikil úrkoma. Hiti 2 til 8 stig. Kólnar um kvöldið með snjókomu, talsverðri norðaustantil, en dregur úr úrkomu sunnantil. Á fimmtudag: Breytileg átt 3-10 m/s, skýjað með köflum og úrkomulítið, en dálítil snjókoma við norðurströndina. Hiti kringum frostmark að deginum, en að 5 stigum við suðurströndina. Á föstudag: Suðvestlæg átt og dálitlar skúrir eða slydduél, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti 2 til 8 stig, mildast suðvestanlands. Á laugardag: Vaxandi sunnanátt með rigningu, en að mestu þurrt norðaustanlands. Hlýnar í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og skúrir, en bjart með köflum á austanverðu landinu.
Veður Færð á vegum Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira