Innlent

Rubio: Ís­land í miðjunni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Marco Rubio ávarpaði landann.
Marco Rubio ávarpaði landann. Vísir/Anton Brink

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.

Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund hans með Þorgerði í Höfða og síðan Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í morgun. Þar hóf hann mál sitt á að geta þess að sjöhundruð þúsund bandarískir ferðamenn sæki Ísland heim á ári hverju, sendiherrann Billy Long hefði lofað því að hífa þá tölu upp í milljón. Ísland væri friðsælasta land í heimi.

„Í áratugi hefur Ísland verið á strategískum stað sem skiptir máli fyrir öryggi okkar og á meðan heimurinn hefur breyst hefur landafræðin alltaf skipt máli,“ sagði Rubio meðal annars á fundinum. Hann sagði að Ísland væri í miðju norðurslóða og skipti því miklu máli fyrir sameiginlegt öryggi Bandaríkjanna, Íslands og annarra vinaþjóða. Hann lagði áherslu á að Ísland gegndi mikilvægu hlutverki fyrir sameiginlegt öryggi NATO ríkja. Samstarfið skipti miklu máli til að koma í veg fyrir átök.

Rubio fagnaði því að hafa séð norðurljósin.Vísir/Anton Brink

Þá lagði Rubio áherslu á samstarf ríkjanna á öðrum sviðum og nefndi meðal annars að Ísland hefði um árabil verið aðsetur bandarískra geimfara til æfinga. Um væri að ræða fyrstu opinberu heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands þar sem ekkert annað erindi væri uppi og sagði Rubio telja að stutt yrði í þá næstu vegna mikilvægis Íslands.

Engin uppbygging án samþykkis

Rubio fékk spurningar frá íslenskum sem og erlendum fjölmiðlum á fundinum. Hann var meðal annars spurður út í mögulega hernaðaruppbyggingu Bandaríkjanna á Íslandi og mögulega inngöngu Úkraínu inn í NATO, sem hann sagði af borðinu þar til stríðinu lýkur. Hann segir Bandaríkin opin fyrir viðræðum um frekari uppbyggingu á Íslandi.

„Við myndum aldrei gera neitt án samstarfs við yfirvöld. Það eru tækifæri til þess að gera meira, Ísland hefur innviðina,“ sagði Rubio sem sagði að sjónir Bandaríkjanna hefðu beinst annað undanfarin ár. Heimurinn væri hinsvegar breyttur, Ísland hafi alltaf gegnt krítísku hlutverki fyrir varnir NATO. Sagði hann ógnir væru til staðar á Norðurslóðum og að þær væru fjölbreyttari en áður.

Vildi ekki ræða kort Bandaríkjaforseta

Þá spurði blaðamaður New York Times út í frægt Norður-Ameríkukort Bandaríkjaforseta sem birtist á Truth Social þar sem mátti sjá Ísland sveipað bandarísku fánalitunum.

„Við erum ekki að tala um samfélagsmiðlafærslur. Við gerum margt saman, allt saman er það jákvætt,“ sagði Rubio þá. Hann var einnig spurður um það hvers vegna engin skip né flugvélar hefðu tekið þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi á Íslandi í síðasta mánuði. Sagði hann Bandaríkjamenn hafa þurft að bregðast við vegna átakanna í Miðausturlöndum og að ekki mætti lesa dýpra í þá ákvörðun. „Við erum enn með mannafla hér og ég er í heimsókn því þessi staður skiptir máli.“

Lagði áherslu á efnahagslegt samstarf

Rubio var þá spurður út í kannanir Bandaríkjanna á varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna og sagði Bandaríkjamenn oft kanna hvar þau standa. Hann sagði Bandaríkin standa með Íslandi, löndin ættu sér langa sögu um samstarf og litu á sömu hlutina sem ógnir og sömu hlutina sem tækfiæri. Hann var einnig spurður hvar væru tækifæri til að dýpka samstarfið.

„Öryggi kemur á undan öllu öðru, ef þú ert ekki öruggur þá geturðu ekki verið farsæll. Það sem hefur breyst er heimurinn og ógnirnar, ógnirnar fyrir tuttugu til þrjátíu árum voru aðrar en við erum með ákveðna grunnlínu sem nær 75 ár aftur í tímann,“ sagði Rubio. Hann segir tækifæri á sviði efnahagsmála mörg og að á Íslandi væru mörg frábær fyrirtæki. Eitt af því sem yrði gert til að fylgja eftir fundinum væri að fá bandarísk fyrirtæki í sérstaka heimsókn hingað til lands.

Þá var Rubio spurður út í mögulegan fríverslunarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Hann sagði tíma fríverslunarsamninga liðna en að tækifæri væru til staðar til að gera tvíhliða samninga. Slíkt hefði verið í bígerð áður en hann hefði komið í heimsókn til Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×