Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2026 09:58 Nóbelsverðlaunapeningur. AP/Angela Weiss Belginn Francis Halzen hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag fyrir framlag sitt til rannsókna á svonefndum háorkufiseindum með uppruna í fjarlægum vetrarbrautum. Hann átti frumkvæði að því að nota ís á suðurpólnum til þess að greina fiseindirnar.
Halzen er fæddur í Belgíu árið 1944 og er prófessor í öreindaeðlisfræði við Háskólann í Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann hefur leitt svokallaða IceCube Neutrino Observatory, rannsóknarstöð sem er grafin um tvo kílómetra niður í ísinn við suðurpólinn á Suðurskautslandinu. Fiseindir eru út um allt en þær streyma meðal annars frá sólinni okkar. Þær gagnverka þó takmarkað við efni. Þannig ferðast þær í gegnum líkama manna og jörðina sjálfa án þess að menn verði nokkurs vísari. Einstaka sinnum gerist það þó að þær gagnverka við kjarna frumeinda. Halzen fékk þá hugdettu að nota ís til þess að greina árekstra fágætra háorkufiseinda við frumeindir á níunda áratug síðustu aldar. Hægt væri að greina blossa frá þessum árekstrum í gegnsæjum ísnum sem væri auk þess laus við ýmis konar truflanir. Vegna þess hversu fágætar háorkufiseindir eru þarf gríðarlegt magn íss til þess að greina þær. Athuganastöðin á Suðurskautslandinu spannar heilan rúmkílómetra af ís. Nóbelsnefndin segir að athuganirnar á Suðurskautslandinu hafi opnað dyrnar að fjarlægum vetrarbrautum og veitt innsýn í eðli sprengistirna. Halzen sagðist hafa efast um að hugmynd hans ætti eftir að ganga upp. Hann hefði þó haft heppnina með sér að hafa náð að gera hana að veruleika. Fréttin verður uppfærð.
Nóbelsverðlaun Vísindi Suðurskautslandið Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Sjá meira