Fótbolti

Sjáðu mörkin úr slátrun Eng­lands

Valur Páll Eiríksson skrifar
Kane skoraði tvö í sögulega stórum sigri í gær.
Kane skoraði tvö í sögulega stórum sigri í gær. Bradley Collyer/PA Images via Getty Images

England vann 7-0 sigur á Króatíu í Þjóðadeild karla í fótbolta í gær og það á útivelli. Um er að ræða stærsta tap í sögu Króata.

Harry Kane og Bukayo Saka skoruðu tvö mörk hvor í leik gærdagsins sem er það stærsta í sögu króatíska landsliðsins frá því að það hóf að spila undir eigin fána eftir slit frá Júgóslavíu á tíunda áratugnum.

Klippa: Mörkin úr 7-0 sigri Englands á Króatíu

Hinn 41 árs gamli Luka Modric var að spila landsleik númer 205 í gær og sagðist í fyrsta sinn skammast sín eftir leik fyrir þjóð sína í Rijeka í gærkvöld.

Auk Kane og Saka skoruðu þeir Anthony Gordon, Jude Bellingham og Morgan Rogers skoruðu eitt hver.

Mörkin sjö úr leik gærdagsins má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×