Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Jakob Bjarnar skrifar 4. október 2026 10:00 Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segist ætla að láta af störfum eftir eitt og hálft ár. vísir/anton brink Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.
Óhætt er að segja að það hrikti í rekstri frjálsra fjölmiðla sem hafa lengi verið í miklum rekstrarvanda. Síðustu vendingar voru þær að kvöldfréttatími Sýnar var lagður niður. Viðbrögðin urðu ofsafengin. Hvernig horfir þetta við formanni Blaðamannafélagsins? „Ég held að það fari eiginlega bara saman að tjá sig um þetta og stöðuna almennt sem formaður Blaðamannafélagsins og svo bara sem samfélagsþegn. Þetta er mjög alvarlegt og fyrir nokkrum árum, þegar við vorum svona að átta okkur á stöðunni, segjum bara fyrir fimm árum, í hverju breytingarnar fólust með auglýsingasölu og neysluvenjum á fjölmiðlum og fréttamiðlum með tilkomu samfélagsmiðlanna.“ Að sögn Sigríðar Daggar var þeim þá ljóst í félaginu að það þyrfti að grípa ansi harkalega inn í. „Við erum búin að vera, síðan ég varð formaður, að vara við því að ef ekkert verður að gert þá verðum við bara með RÚV að nokkrum árum liðnum. Og síðan er þetta bara smám saman að raungerast. Við sáum Fréttablaðið fara á hausinn. Það eru nú ekkert svo mörg ár síðan, það var, þrjú ár síðan.“ Það var skellur. „Það var risastór skellur.“ Fólk treystir sjónvarpsfréttamanninum Svo gerist það fyrir jól að stjórnendur Sýnar tilkynntu að þeir ætluðu að hætta með sjónvarpsfréttir um helgar og á rauðum dögum. „Og þá vissi maður að það væri bara fyrsta skrefið í áttina að því sem síðan gerðist núna í haust. Því miður. Ég er algjörlega ósammála þeirra sýn á sjónvarpsfréttir og þeirra viðhorfum gagnvart sjónvarpsfréttum. Ég held að það sé stórkostlega vanmetið af þeirra hálfu. Áhrifin sem sjónvarpsfréttirnar höfðu bara á ímynd fréttastofunnar í heild sinni, Bylgjunnar og Vísis. Og það verður ekkert metið í einhverjum debet- og kreditdálkum.“ Klippa: Í bóli Bjarnars - Sigríður Dögg Auðunsdóttir En það er nú kannski ekki hægt að ætlast til þess að fyrirtæki úti í bæ hérna, þegar það sér ekki fram á það að það sé hægt að reka þetta með sómasamlegum hætti, að þetta sé alltaf í dúrandi mínus, að það reki sjónvarpsfréttir? „Nei, það sem ég er að meina er að virðið í krónum og aurum er, held ég, miðað við svona það sem ég hef kynnt mér, miklu meira heldur en auglýsingatekjurnar af þessum tiltekna slotti, sem eru fréttirnar. Rannsóknir hafa sýnt að traust skiptir höfuðmáli. Sko, þegar við ræðum fjölmiðla og fréttamiðla og blaðamennsku og traust, þá mælist það ekki meira á neinni miðlunarleið en í sjónvarpi. Þannig að sami fréttamaður getur sagt frétt í sjónvarpi og á vefmiðli, en það mælist meira traust á fréttina sem hann segir í sjónvarpinu.“ Athyglisvert. „Þetta hefur eitthvað að gera með að þetta er manneskja sem er að segja þér frá, hún er að tala við þig. Þetta er manneskja sem þú ert kannski búinn að fylgjast með jafnvel í mörg ár og þú átt stefnumót við hana. Oftast bara fyrir framan sjónvarpið – þú hleypir henni inn í stofu til þín. Þannig verður traustið mikið. Þetta var ég að reyna að benda þeim á, meðal annars, að það væri ekki hægt að mæla svona í krónum og aurum. Hvaða áhrif hefur það á heildarrekstur samsteypunnar og traust til Vísis og Bylgjunnar að missa kvöldfréttirnar? Hverskonar miðlum treystir þú? En tengist þetta ekki því að fjölmiðlamarkaðurinn hefur gerbreyst? Mér hefur reyndar fundist traustsmælingar á fjölmiðlum mjög vafasamar, einfaldlega vegna þess að þú treystir í raun og veru þeim fjölmiðli helst sem segir sem minnst. Það er einhvern veginn í eðli fréttanna? Oft vill fólk ekki að það sé sagt of mikið! Við könnumst nú heldur betur við þá umræðu. „En samt ertu að treysta miðluninni til þess að segja þér það sem þú ekki veist.“ Jú. „Þannig að það er líka það sem traustið snýst um. Treystir þú þessum miðli til þess að upplýsa þig um það sem þú þarft að vita til þess að geta verið virkur þegn í þessu samfélagi? Miðlar sem flytja bara skemmtiefni og froðufréttir mælast ekki með mikið traust þó að þeir séu kannski ekkert að segja rangt frá. En bara af því að það skiptir ekki miklu máli fyrir þann sem er spurður hvað þarna er í boði.“ Þú fær mig nú ekki til að tala illa um innblástursfréttir því að þær eru nú þær sem mér finnst nú bara oft og tíðum mikilvægastar. „Þær eru sannarlega mikilvægur hluti af blaðamennsku og lýsa samfélaginu, sem er eitt af meginhlutverkum blaðamennskunnar.“ Heldur betur. Sigríður Dögg segir slíkar fréttir vissulega hafa heimildagildi og það sé ríkur þáttur í blaðamennsku að skrá söguna. Og það er ekki sama hvernig það er gert? „Nei, nei, að sjálfsögðu. Það er hægt að gera þetta vel og hægt að gera þetta illa, bara eins og öll blaðamennska.“ Samfélagsmiðlar breyta leiknum Hvernig gengur þér eiginlega sem formanni að umgangast þennan endalausa skilgreiningarvanda sem er munurinn á bara blaðamennsku og svo samfélagsmiðlum? Rennur þetta ekki svolítið saman í eitt? „Já, þetta er einn hluti af okkar stóra verkefni núna og hefur verið svolítinn tíma; að svona breyta því hvernig við tölum um þessa hluti alla og skýra orðræðuna, skýra hugtökin, gera betri greinarmun. Sigríður Dögg segir kollega á Norðurlöndum súpa hveljur þegar þeir heyra hvernig stjórnvöld eru stöðugt að bregða fæti fyrir blaðamenn.vísir/anton brink Af því við erum að tala um samfélagsmiðla og fjölmiðla. Eru samfélagsmiðlar fjölmiðlar? Þetta eru miðlar sem ná til fjöldans. Og erum við að tala um fjölmiðla þegar við erum að tala um samfélagslega mikilvæga blaðamennsku, blaðamennsku sem er mikilvæg fyrir lýðræðið?“ Þannig segir Sigríður Dögg áhersluna hjá félaginu þá að tala frekar um blaðamennsku frekar en fjölmiðlun, sem er talsvert breiðara hugtak. „Er það fjölmiðlun að skrifa status á Facebook sem þú ert kannski með opinn fyrir öllum? Já, það er ákveðin fjölmiðlun en það er ekki blaðamennska. Og við erum líka svolítið að gera greinarmun á hvernig fjölmiðillinn er. Er þetta fréttamiðill sem segir fréttir, stundar þannig blaðamennsku að hann upplýsir, veitir aðhald og setur samhengi? Það er kannski sá fjölmiðill sem er mikilvægastur fyrir lýðræðislega umræðu. Hann er þessi tegund fjölmiðils – fréttamiðill – sem veitir þér upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að þú getir til að mynda tekið ákvörðun um hvað þú eigir að kjósa, veitt valhöfum aðhald og allt þetta. Þannig að orðanotkunin er farin að skipta miklu meira máli núna heldur en hún gerði áður.“ Munurinn á fréttamennsku og blaðamennsku Sigríður Dögg segir félagið þannig einbeita sér að því að breiða út þann boðskap að tala um mikilvægi blaðamennsku frekar en að tala um mikilvægi fjölmiðla. „Og ég held að það sé að takast. Ég heyri fólk tala meira um blaðamennsku heldur en það gerði áður. Og það má færa rök fyrir því að Háskólinn hafi breytt nafninu á náminu sínu. Í staðinn fyrir að tala um B.A.-nám í blaða- og fréttamennsku þá er það bara B.A.-nám í blaðamennsku. Fréttamennska er bara ein tegund af blaðamennsku. Sigríður Dögg segir það alveg rétt að á sumum héraðsfréttaritum sé ekki stunduð fréttamennska, þá í samhengi við siðareglur Blaðamanna, en á sumum sé það svo og slíka miðla sé nauðsynlegt að styðja.vísir/anton brink Þannig að blaðamennskan er „journalism“ sem nær sem regnhlífarhugtak yfir allt það sem blaðamenn gera, fréttamenn, hlaðvarpsfólk, sjónvarpsframleiðendur, myndatökumenn, ljósmyndarar, þetta er allt blaðamennska.“ Hlaðvarp segirðu. Við höfum farið yfir muninn á samfélagsmiðlum og blaðamennsku. En hvernig myndum við skilgreina hlaðvörp? Þetta hefur verið mikið stríð milli hlaðvarpara og fjölmiðlanefndar. Ég get nefnt Þórarin Hjartarson með „Eina pælingu“ og þær stöllur Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnars með „Komið gott“. „Ég heyrði viðtal, eða brot úr viðtali, við hana Kristínu hérna á Bylgjunni fyrir ekki svo löngu síðan þar sem hún var einmitt að útskýra hvers vegna hún liti ekki á sitt hlaðvarp sem fjölmiðil. Hennar skýring var sú að hún væri ekki fjölmiðlamaður.“ Kristín Gunnars er fjölmiðlakona Já, þær hafa líka verið að leggja áherslu á að sannleikurinn sé látinn liggja á milli hluta, að hann sé ekki látinn trufla góða sögu? „Já. En þarna erum við aftur komin að þessum ruglingi með hugtakið blaðamennska og fjölmiðlun. Auðvitað er hún fjölmiðlakona. Hún miðlar til fjöldans. Hún er með áskrifendur, hún selur áskrift. Þetta er eitt vinsælasta hlaðvarp landsins þannig að ég get svona rétt ímyndað mér að það séu þúsundir eða jafnvel tugþúsundir sem hlusta á þetta. Þannig að þetta er sannarlega fjölmiðlun. Hún er fjölmiðlakona, þótt hún sé ekki blaðamaður.“ Ó k … „Fjölmiðill er miklu meira en miðill þar sem blaðamennska er stunduð. Fjölmiðill getur verið hvers konar miðlun til fjöldans. En fjölmiðill þar sem blaðamennska er stunduð er fréttamiðill. Eða einhvers konar miðill sem lýtur ritstjórn og stundar blaðamennsku. Ég sé ekki alveg af hverju þetta er svona mikið mál, að hlaðvörp séu flokkuð sem fjölmiðill, vegna þess að mér finnst það ekkert gera lítið úr því sem blaðamenn eru að gera, eins og mér finnst svolítið það sem þau eru að færa rök fyrir.“ Formaðurinn segir að hver sem er megi vera með hlaðvarp og gera hvað sem er, innan ramma laganna. „Þú mátt ekki stunda meiðyrði eða slíkt enda það laganna að grípa inn í slíkt. Það fer fyrir dómstóla ef þú brýtur þau lög, en það kemur málinu ekkert við hvort þú ert að stunda blaðamennsku eða ekki á viðkomandi hlaðvarpi. Hlaðvarpið er frábært „by the way“ og bara geggjað að við séum komin með heila nýja tegund af miðlun. Þetta er bara eins og þegar hljóðbækurnar koma í staðinn fyrir bækurnar, þú veist. Þetta er önnur miðlunarleið en sami hlutinn. Það geta verið hlaðvörp sem eru fréttahlaðvörp. Þau eru mjög vinsæl úti í heimi, þó að við þekkjum þau ekki eins mikið hér. En ég skil ekki af hverju þetta er svona flókið. Það kostar ekki einu sinni neitt að skrá sig sem fjölmiðil.“ Gestgjafinn er fjölmiðill Þetta er viðkvæmt efni. Ég fór til að mynda í hlaðvarp hjá honum Þórarni Hjartarsyni þar sem ég var að velta fyrir mér hvers konar fyrirbæri Samstöðin væri. Er það ekki bara hlaðvarp á sterum? Ég meina, þeir dæla inn viðmælendum og viðra sínar skoðanir ótæpilega en eru ekki að afla neinna frétta. Þeir móðguðust alveg svakalega við þessar hugleiðingar en þetta segi ég með fullri virðingu, ég er ekki að tala niður til hlaðvarpa.“ Hver er munurinn á blaðamanni, fréttamanni og samfélagsmiðlastjörnu, hlaðvarpara og áhrifavaldi. Sigríður Dögg þetta niður fyrir sig og lesendur.vísir/anton brink „Þess vegna ætti maður kannski ekkert að vera að gera svona mikið úr því hvernig við eigum að skilgreina hlaðvörp. Hlaðvörp eru bara fjölmiðlunarleið, miðlunarleið, það er fjölmiðill. Alveg eins og Gestgjafinn, tökum sem dæmi, miðlar uppskriftum. Jú, jú, þar eru einhverjar greinar sem blaðamenn vinna en mestmegnis er þetta miðlun á uppskriftum. Við höfum aldrei dregið í efa að Gestgjafinn sé fjölmiðill. Ef Gestgjafinn væri með hlaðvarp sem myndi fjalla um uppskriftir, væri það þá ekki fjölmiðill?“ Svo erum við með annan hóp fólks sem kallast áhrifavaldar, eða smáhrifavaldar eins og einhver vill kalla þann hóp; er það fólk þá að stunda fjölmiðlun samkvæmt þessari skilgreiningu? „Ég myndi alveg geta fært rök fyrir því, ef þeir eru að miðla upplýsingum til fjöldans, ég tala nú ekki um eins og þarna þegar þeir eru farnir að lifa af því, komnar áskriftir og jafnvel kostanir.“ En áhrifavaldarnir gera engan sérstakan greinarmun á milli auglýsinga og efnis, það er eiginlega inntak þess sem þeir gera? „Jú, það er eins og það er. Þeir ættu kannski að lesa siðareglurnar. En það er líka fjöldi áhrifavalda úti í heimi sem eru blaðamenn og nota þessar nýju miðlunarleiðir samfélagsmiðlanna, mikið TikTok og mjög mikið YouTube, til þess að koma fréttum og umfjöllunum á framfæri til hóps af fólki sem ekki nýtir sér hefðbundnar miðlunarleiðir. Sem eru vefmiðlar, prentmiðlar, ljósvakamiðlar, útvarp.“ Hver er tilgangurinn með miðlun upplýsinga? Sigríður Dögg telur okkur eiga við að hætta að tala um miðlunarleiðir þegar við erum að tala um blaðamennsku, heldur tala um vinnubrögðin, siðareglurnar, tilganginn. „Hver er tilgangurinn með því sem þú ert að miðla? Ertu að reyna að hafa áhrif á skoðanir annarra? Þá ertu ekki blaðamaður. Ertu að reyna að upplýsa, setja í samhengi, sem sagt vera fulltrúi almennings, spyrja spurninga sem hann er ekki í aðstöðu til að spyrja. Sigríður Dögg telur fjölmiðlanefnd komin langt út fyrir sitt verksvið þegar hún er farin að hlutast til um verklag inni á ritstjórnum.vísir/anton brink Varpa ljósi á samfélagið hverju sinni eins og við vorum að tala um hérna áðan. Þá ertu að stunda blaðamennsku, ef þú gerir það samkvæmt siðareglum. Þú átt engra hagsmuna að gæta. Þú færð ekki borgað fyrir það. Þú ert ekki að taka kostanir eða neitt.“ Þetta er mikilvægt atriði. „Já, og þetta er það sem við erum að tala um. Þetta er það sem skiptir samfélagið máli. Allt hitt er gott. Öll umfjöllun er fín og hlaðvörp eru frábær og mikilvæg fyrir samfélagslegu umræðuna. En þau koma aldrei í staðinn fyrir blaðamennsku.“ Svo ég pakki þessu saman, þá finnst þér ekkert að því að fjölmiðlanefnd sé að sækja að þessu fólki og vilji flokka það og skrá sem fjölmiðla? „Nei, það truflar mig að minnsta kosti ekki.“ En hvað finnst þér um fjölmiðlanefnd sem fyrirbæri að öðru leyti? Löng þögn. „Sko, það eru ákveðin atriði í starfsemi fjölmiðlanefndar sem til dæmis varða mál sem þú þekkir vel. Þegar nefndin ákvað að túlka fjölmiðlalögin sem segja til um hvernig fjölmiðlanefndin eigi að starfa þannig að hennar hlutverk væri meðal annars að gefa álit á því hvernig fréttamiðlar fjölluðu um tiltekin mál, það er hvernig blaðamennska væri stunduð á viðkomandi fjölmiðli. Þar finnst mér að fjölmiðlanefnd hafi farið út fyrir verksvið sitt. Það er alls ekki á vegum stjórnvaldsnefndar að skera úr um hvernig umfjöllun fjölmiðla eigi að vera.“ Fjölmiðlanefnd komi verklag fjölmiðla ekki við Sigríður Dögg telur hins vegar að nefndin geti vasast í öðru, svo sem því hvort verið sé að brjóta lög með birtingu auglýsinga, að auglýsa tóbak eða áfengi eða senda út barnaefni sem telst skaðlegt börnum. Það þarf ekki endilega að fara fyrir dómstóla. En hvað varðar efnistök fjölmiðla og blaðamanna, þessi nefnd á ekki að úrskurða um það og það eru aðrar leiðir til þess, til að mynda siðanefnd Blaðamannafélagsins sem úrskurðar í málum þar sem viðfangsefni eða þeir sem fjallað er um í tiltekinni grein eða frétt hafa verið brotið á sér, geta kært til siðanefndar. „Svo er bara einfaldlega hægt að fara hefðbundnu dómstólaleiðina. Ég veit að fjölmiðlanefnd hefur fært þau rök fyrir þessari ákvörðun sinni að það sé íþyngjandi fyrir almenning að þurfa að fara með mál fyrir dóm, það sé dýrt og það sé þungt en á móti kemur að þeir geta farið fyrir siðanefnd sem kostar ekki neitt.“ Er minna að gera hjá siðanefnd Blaðamannafélagsins eftir að fjölmiðlanefnd kom til skjalanna? „Það held ég ekki. Það er góð spurning. Ég er ekkert viss um að þetta séu nákvæmlega sömu umkvörtunarefnin og þau sem koma fyrir siðanefnd. Siðanefndin hefur eftirlit með því hvort blaðamenn fari að siðareglum blaðamanna, þó það skarist að einhverju leyti varðandi það að eiga rétt á andmælum og annað, en ég held ekki.“ Eitt og hálft ár og þá er Sigríður Dögg hætt Fimm ár eru síðan Sigríður Dögg tók við sem formaður Blaðamannafélagsins og hún segist ætla að vera í eitt og hálft ár í viðbót. Hún ætlar að klára þetta kjörtímabil. Er þetta svo bara búið hjá þér? „Ég held það. Ég held að sjö ár séu bara mjög fínn tími. Ég er að leggja drög að því að klára öll þessi stóru verkefni sem ég er búin að setja á dagskrá og mig langar að klára. Svo mun ég bara tilkynna það í tæka tíð þannig að félagsmenn geti fundið eftirmann í góðu tómi. Ég held að það hafi enginn gott af því að vera of lengi í svona starfi. Þú veist, níu ár eru líka í lagi, eitt kjörtímabil í viðbót en kollegar mínir á Norðurlöndunum tala um það að maður þurfi helst að skuldbinda sig í átta ár.“ Sigríður Dögg er samhliða formennsku í BÍ formaður Norrænu blaðamannasamtakanna. Er þetta í fyrsta skipti sem Íslendingur gegnir þeirri stöðu og hún telur það mikilvægt fyrir Íslendinga. Sigríður Dögg skilur ekki hvers vegna hlaðvarparar eru í stríði við fjölmiðlanefnd.vísir/anton brink Hún segir stöðu blaðamennsku á Íslandi almennt verri en gerist og gengur á Norðurlöndum, nema ef vera kynni að staðan sé slæm í Finnlandi. Noregur sé hins vegar fyrirheitna landið í blaðamennskunni og þar sé meðvitund landsmanna um mikilvægi blaðamennsku allt önnur en við þekkjum hér. Til að mynda eru 60 prósent heimila í Noregi áskrifendur að norskum fréttamiðli á meðan það er um 15 prósent hér. En hvernig gengur að ná eyrum stjórnvalda? „Bara mjög vel. Við erum með, held ég, vinveitt stjórnvöld núna sem vilja fjölmiðlum vel. Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra hefur sýnt það í verki, ráðherra málaflokksins, með þessari fjölmiðlastefnu. Þetta er fyrsta fjölmiðlastefnan sem íslensk stjórnvöld gefa út og það sýnir bara áhuga á málaflokknum og virðingu fyrir mikilvægi hans.“ Mikilvægi héraðsfréttarita Mér finnst reyndar Logi stundum vera bara alveg úti á túni, eins og þegar hann er að tala um héraðsfréttarit. Hann blandar þeim inn í umræðuna um fréttamiðla með þeim orðum að þeir séu svo mikilvægir fyrir sjálfsmynd sveitarmannsins! Af hverju er styrkur til þeirra ekki bara byggðastyrkur? (Við verðum að geta talað um þetta án þess að vera alltaf að tipla á tánum í kringum þá, þetta er eins og köttur í kringum heitan graut, er það ekki?) „Já, sko, ekki eru allir héraðsfréttamiðlar sem stunda blaðamennsku. Það er bara þannig. En margir eru það. Og þeir héraðsfréttamiðlar sem stunda alvöru blaðamennsku þurfa stuðning. Það er algjörlega ljóst. Vegna þess að við vitum það að það er mikilvægt fyrir fólkið sem býr í héraðinu eða á svæðinu að það sé ákveðinn fókus á til að mynda kjörna fulltrúa.“ Sigríður Dögg tekur dæmi. „Ég meina, landsmiðlarnir hafa kannski ekkert endilega áhuga á því sem gerist í Bolungarvík nema það sé þeim mun meira krassandi. En það gæti samt verið eitthvað í gangi þar sem skiptir fólkið í Bolungarvík máli. Og ef við erum með héraðsmiðla á Vestfjörðum sem eru til að mynda, segjum bara í Bolungarvík, að sinna þessu eftirlitshlutverki og upplýsa almenning í Bolungarvík um það sem er að gerast þar, þá bara skiptir það máli. En þá þurfum við líka að gera kröfu til þess ef við erum að styrkja þessa miðla úti á landi sem telja sig vera að gera þessa hluti, að þeir geri þessa hluti og stundi blaðamennsku. Ef við erum að styrkja þá. Ég held að sú sé krafan.“ Yfirgengilegt flæði upplýsinga Annað mikilvægt hugtak, þegar blaðamennska er rædd, er fjölmiðlalæsi. Sú var yfirskriftin á hlutverki fjölmiðlanefndar á sínum tíma; að henni bæri að stuðla að auknu og betra fjölmiðlalæsi. En það hefur ekki farið mikið fyrir því starfi. Var það ekki partur af vitundarvakningunni sem Blaðamannafélagið stendur fyrir? „Já, eða, það hefur nú meira með að við þurfum að fá fólk til þess að átta sig á því að góðar fréttir eru ekki ókeypis. Blaðamennska er ekki ókeypis og ef við viljum geta vænst þess að hún sé vönduð þá þurfum við að borga fyrir hana.“ Og Sigríður Dögg vill að við gerum eins og Finnar en þar er blaðamennska mikilvægur hluti í námskrá grunn- og menntaskóla. „Eitt mikilvægasta sem við gætum kennt ungum börnum í dag er að gera greinarmun á því hvað eru sannar og réttar upplýsingar og hvað eru ekki. Það gildir um allt, ekki bara fjölmiðla, þetta er spurning um upplýsingalæsi. Fólk er að fá svo mikið af upplýsingum í andlitið, í símana sína og með tilkomu þessara samfélagsmiðla. Aldrei fyrr í sögu mannkyns hefur það haft aðgengi að öðru eins magni upplýsinga og það þýðir að blaðamennska hefur aldrei verið mikilvægari.vísir/anton brink Fólk er komið með aðgang að öllu í heiminum í gegnum netið. Fólk hefur aldrei, hvorki fyrr né síðar, haft jafn mikinn aðgang að upplýsingum. Sem er gott. En vandamálið er þá einmitt út af því, þessu gríðarlega magni, að það hefur gleymst að kenna fólki að gera greinarmun á því hverju það á að trúa, hvar á að setja spurningamerki við og hvernig á að sannreyna upplýsingar? Ég ætla ekki að gera það en ég gæti nefnt fullt af námsgreinum í skólakerfinu sem væri auðvelt að réttlæta að skipta út fyrir upplýsingalæsi.“ Slakt upplýsingalæsi er síður en svo bundið við börn og ungmenni. Það snýst um stöðu blaðamannsins og ef þú áttar þig ekki á því hver hún er þá getum við ekki rætt um blaðamennsku sem fag. Það fyrsta sem menn gera þegar þeir lesa frétt sem þeim finnst óþægileg er að fara beint í blaðamanninn sem persónu og reyna að gera hann ótrúverðugan. Sigríður Dögg segir þetta rétt. Málefnalegri og ómálefnalegri gagnrýni einatt ruglað saman Þegar menn vilja svara ómaklegri og ómálefnalegri gagnrýni er þeim núið því um nasir að þeir séu svo ofurviðkvæmir fyrir sjálfum sér. En það er hreint ekki það sem er verið að tala um. Fjölmiðlar nærast á gagnrýni. En það verður að vera eitthvert vit í henni, það þýðir ekki að fara á Facebook-vegg viðkomandi blaðamanns, finna þar eitthvað sem hann hefur hent fram þar og segja: Bingó, þessi frétt er biast. Að gera sér grein fyrir þessu er fjölmiðlalæsi. „Já, þetta er fjölmiðlalæsi. Þetta er líka upplýsingalæsi og lýsir ómenningu sem er hluti af þessum kommentakerfissyndrómi. Ég veit ekki hvernig á að lýsa því að fólk skuli leyfa sér að koma fram með einhverjar mjög meiðandi fullyrðingar eða árásir á einstaklinga, nafngreinda einstaklinga undir nafni í kommentakerfi á Facebook, undir einhverri frétt. Nokkuð sem þú myndir aldrei segja opinberlega í öðru samhengi.“ En það er erfitt við að eiga því dómstólarnir virðast styðja þetta. Ég las grein eftir þig sem þú skrifaðir og birtir á Vísi fyrir ekki svo löngu síðan. Undir fyrirsögninni held ég: „Má berja blaðamenn?“ „Það mál er nú komið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.“ Já! Hæstiréttur hefur ekki samþykkt að taka við því í áfrýjun? „Nei.“ „Ömurlegur dómur“ kominn út til Evrópu Dómarar skilja ekki blaðamennsku og oft mætti ætla að þeim sé beinlínis í nöp við hana. „Þetta var bara ömurlegur dómur, mjög hættulegur og alvarlegur fyrir okkar samfélag. Ég ætla bara að leyfa mér að taka svo stórt til orða. Ég missti næstum því trú á dómskerfinu þegar ég las hann.“ Næstum því? Dómar og þá sérstaklega hvað varðar blaðamennsku hafa oft fengið mig til þess að efast mjög um dómstóla. Ég vil ganga svo langt að segja suma dóma hreinlega til háðungar fyrir dómskerfið í heild sinni. „Ef við tölum bara um tjáningarfrelsi, af því við erum komin inn á þær brautir, þá held ég að rosalega lítil virðing sé borin fyrir því á Íslandi. Blaðamennska er hluti af tjáningarfrelsinu. Fólk áttar sig kannski ekki alveg á af hverju. En ástæðan er að þú átt rétt á upplýsingum. Þetta er réttur til upplýsinga líka.“ Einmitt. „Og þessar upplýsingar færðu frá fréttamiðlunum í gegnum vinnu blaðamannsins. Um leið og verið er að hefta blaðamenn við störf þá er verið að brjóta á, ekki bara tjáningarfrelsi þeirra heldur einnig rétti almennings til upplýsinga. Þannig að þetta er samtvinnað. Hæstiréttur neitaði að taka til meðferðar áfrýjun á dómi, en Aðalsteinn Kjartansson kærði Pál Vilhjálmsson fyrir meiðyrði. Það mál er nú á leið fyrir mannréttindadómstól Evrópu.vísir/anton brink Við í félaginu höfum verið í stöðugum slagsmálum við stjórnvöld undanfarin fjögur ár í málum sem fólkið sem við berum okkur saman við, lönd sem við berum okkur saman við og ég er að tala um kollega okkar og vini okkar á Norðurlöndum, þeir bara súpa hveljur. Þeir eiga ekki orð yfir það sem við erum að mæta hér. Ég get nefnt mörg dæmi.“ Þegar Isavia beindi kösturum á sjónvarpsfólk og fleiri sögur Og það stendur ekki á því. „Við þurftum að fara í mál við ríkið til að fá aðgang að hamfarasvæðinu í Grindavík sem blaðamenn bara til þess að skrá söguna og taka viðtöl við fólkið sem var að fara í gegnum þessar hörmungar. En lögreglustjórinn ákvað að það væri svo mikið ónæði fyrir íbúa. Bíddu, eru íbúar ekki í stakk búnir til að segja bara: „Nei, takk, ég vil ekki veita viðtal“ eða „Verið velkomin“? Hvort ætli það sé nú margt fólk eða hvað? Eruð þið bara ósjálfráða? Ég meina, hvernig heldurðu að Grindvíkingum hefði liðið ef blaðamenn hefðu ekki haft áhuga á því sem gerðist þarna?“ Enn eitt dæmið gæti verið Isavia. „Risastórt ríki í ríkinu hindraði störf blaðamanna RÚV, sem voru að fylgjast með brottflutningi einhverra hælisleitenda, með því að lýsa ljóskösturum beint í myndavélina svo þeir gætu ekki myndað á öruggu svæði. Við fengum engin svör frá Isavia þegar við kröfðumst svara með aðstoð ríkislögreglustjóra, sem fékk heldur ekki svör.“ Og enn annað dæmið er sprengingin í Korngörðum. „Nú erum við að fara í mál við ríkið út af Kornagarðamálinu sem var í vor, í lok vetrar þegar sprenging varð í, hérna, Kornagörðum og maður lést. Fréttamenn voru útilokaðir frá því að koma inn á svæðið löngu eftir að hættu hafði verið afstýrt. Þeim var haldið einhvers staðar lengst fyrir utan. Sigríður Dögg segir fyrstu viðbrögð stjórnsýslunnar ávallt þau að neita að afhenda upplýsingar.vísir/anton brink Þeir gátu ekki unnið vinnuna sína. Það var búið að segja frá því sem hafði gerst en öll þjóðin beið með öndina í hálsinum eftir að vita meira og fréttamenn fengu ekki aðgang. Á sama tíma og blaðamönnum var haldið út fyrir, fyrir utan ytra svæðið, þá var stássfólki, fólki í jakkafötum og drögtum með skjalatöskur, hleypt inn á svæðið til að vinna í húsunum þarna í kring.“ Yfirgengilegt skilningsleysi á störfum blaðamanna Sigríður Dögg segir að þegar lögreglunni var bent á þetta, að fólk fengi að fara inn á svæðið en blaðamönnum haldið úti, sagði löggan: „Já, þetta fólk þarf að vinna vinnuna sína! „Einmitt það.“ Dómstólar eru svo enn aðrir sem vilja hindra blaðamenn í að greina frá. „Við erum að lenda í því að það er endalaust verið að birta ekki dóma sem fallið hafa og skylt er að birta. Það er ekkert endilega mikil ánægja með það þegar fréttamenn eru að ganga eftir því að fá þessa dóma frá dómstólunum. Svo náttúrlega Samherjamálið sjálft og hvernig blaðamenn þurftu að líða fyrir það að lögregla var í einhverju samkrulli með einhverjum hagsmunaaðilum þar um að þagga niður umfjöllun um eitthvað sem einhverjum þykir óþægilegt. Allt er þetta svo stórkostlega furðulegt.“ Sigríður Dögg segir að við búum við ágætis löggjöf, upplýsingalöggjöf, sem gengur út á að þú eigir rétt á upplýsingum. „Punktur. En svo eru endalaus dæmi af þessu tagi. Fyrsta svar kerfisins þegar blaðamaður biður um upplýsingar er ávallt: „Nei, þú mátt ekki fá þær. Farðu bara í gegnum úrskurðarnefnd með málið.“ Og það tekur einhverja níu mánuði. Þegar við vitum alveg að fréttir eru „news“, af því að þær eru nýjar. Það er alveg hægt að drepa mál með því að vísa því í einhverjar nefndir. Þetta er bara einhver ómenning.“ Pólítíkusar telji sig hafa dagskrárvald yfir fjölmiðlum Sigríði Dögg hitnar í hamsi við að rifja öll þessi mál upp sem er ágætt því þekkingar- og virðingarleysið meðal dómstóla, stjórnvalda og stjórnmálafólks virðist stundum algert. Sigríður Dögg segist bara vera að hugsa til þess tíma sem hún hefur verið í blaðamennsku í því sambandi. Hún telur að aldrei hafi kveðið eins rammt að þessari óáran og einmitt núna. „Dæmi eru um að fólk í valdastöðu, jafnvel ráðherrar, komi mjög ómálefnalega fram með persónulegri gagnrýni og geri kröfur um að frétt, fyrirsagnir séu með einhverjum ákveðnum hætti eða að nálgun í einhverri frétt eða inngangur í einhverri frétt sé eftir þeirra höfði. Sigríður Dögg segir Blaðamannafélagið hafi mátt takast á við gríðarlegt skilningsleysi og jafnvel ranghugmyndir á æðstu stöðum um fagið.vísir/anton brink Stjórnmálamenn og valdhafar telja sig hafa eitthvert dagskrárvald inni á fjölmiðlum, að þeir geti bara stýrt því hvernig fréttin er sett fram. Fyrir utan það þegar þeir ráðast á miðla eða blaðamenn fyrir það eitt að sinna vinnu sinni, án þess að nefna raunveruleg málefnaleg dæmi. Blaðamenn þurfa aðhald eins og allir aðrir. Þeir þurfa gagnrýni og við þolum vel gagnrýni, við fögnum gagnrýni svo lengi sem hún er málefnaleg.“ Sigríður Dögg segist vitaskuld skoða gagnrýni sem hún fær um hennar vinnu og hennar skrif. „Sem snýr að einhverju sem mér finnst að ég hefði getað gert betur og það er bara oft þannig. Oftast sem betur fer er það ekki þannig að það krefjist leiðréttingar, en ef það væri þannig þá segja siðareglurnar okkar að okkur beri að leiðrétta og það gerum við að sjálfsögðu. Einfaldlega vegna þess að okkar faglegi heiður er að veði; okkar nafn og okkar starfsheiður.“ En fólk vill rugla saman ómálefnalegri gagnrýni og svo málefnalegri? „Algjörlega: Þið þolið ekki neitt. Af hverju eruð þið ekki bara í blómaskreytingum? Eins og frægt er orðið.“ Feykilega erfið uppsögn Þegar þú tókst við félaginu var það að einhverju leyti í keng. Hjálmar Jónsson fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs en hann hafði jafnframt gegnt stöðu framkvæmdastjóra. Félagið hafði farið í misheppnað og árangurslaust verkfall og mátti þar að einhverju leyti um kenna skilningsleysi félagsins og innan stéttarinnar sjálfrar á blaðamennsku á netinu. En hvað hefur verið svona erfiðast þegar þú lítur yfir ferilinn í sæti formanns Blaðamannafélagsins? Löng þögn. „Uppsögn fyrrverandi framkvæmdastjóra. Það er það erfiðasta sem ég hef gert á mínum starfsferli. Það var bara ömurlegt mál, ofboðslega erfitt og mikið áfall hvernig hann brást við. Mikil vonbrigði. Sem betur fer var stjórnin öll einróma í öllum þeim ákvörðunum sem voru teknar. Við töldum okkur og teljum okkur enn hafa staðið eins faglega að öllum ákvörðunum og hægt var.“ Sigríður Dögg segir að þetta ferli hafi tekið átta mánuði. „Og aðdragandinn að þessu, sem var hálft ár, jafnvel meira. Við vorum að vanda okkur. Við gerðum allt sem við gátum til að halda friðinn, að það yrðu sem allra minnst leiðindi. En það fór bara eins og það fór, því miður. Ég hefði alveg viljað að það hefði endað öðruvísi. En ég hefði ekki getað staðið öðruvísi að þessu og við, öll stjórnin. Mér finnst við ekki hafa gert neitt rangt. Viðbrögðum annarra get ég ekki stýrt.“ Sárt fyrir sig og fjölskylduna alla Reyndar varð andskotinn laus en Hjálmar ritaði greinar og sótti ásamt sínum stuðningsmönnum afar hart að Sigríði. „Já, mér þótti erfitt að lesa þær greinar sem birtar voru sem innihéldu fullyrðingar um mig, mína persónu og mitt meinta fjármálamisferli. Ég hef margoft lýst yfir því hvernig þau mál stóðu. Sigríður Dögg segir að það hafi reynst þyngra en hún hugði, sem kona, að taka við rótgrónu félagi sem karl hafði stýrt lengi eftir eigin höfði.vísir/anton brink Og hafði gert það við hann líka. Þar var ekkert saknæmt, engin brot, engar sektir … ekki neitt og þetta vissi þetta fólk. Engu að síður hélt það samt áfram að saka mig um opinberlega að hafa svikið undan skatti sem ég gerði ekki. Það var erfitt að sitja undir því. Og sárt.“ Sigríður Dögg segir að það hafi verið sárt fyrir alla fjölskyldu hennar. „Mér fannst það ómaklegt og bar vott um hefnd í mínum huga. En sem betur fer stóð stjórnin saman sem ein heild og við komumst í gegnum þetta. Viðbrögð félagsmanna langflestra, eða það ég skynjaði alla vega, voru þau að mikil ánægja var með okkar störf. Það ríkti mikil ánægja með þær breytingar sem við gerðum á þessu mikilvæga gamla rótgróna félagi og það var alveg kominn tími á þær.“ BÍ hefur ekkert að fela Ljóst er að enn tekur á Sigríði Dögg að rifja upp þessa tíma. „Þetta var bara svo erfitt. Og það var krefjandi og lærdómsríkt að vera að taka við taumunum þegar maður er kona af karlmanni sem er búinn að vera í sömu stöðu í kannski 20, 30 ár og gerir hlutina með sínum hætti. Þær aðferðir voru kannski í lagi fyrir 30 árum. Þær leiðir og þær kröfur sem félagsmenn gerðu þá eru bara aðrar en við gerum í dag. Við erum Blaðamannafélagið og við eigum ekki að gera neitt sem er ekki uppi á borðum og samkvæmt reglum. Við eigum ekki að þurfa að skammast okkar fyrir neitt eða fela. Og það er ekkert þannig, ekkert.“ Sigríður Dögg segist stolt af því hvert þau eru komin með félagið núna. „Og við erum orðin miklu sýnilegri í samfélaginu en við vorum. Og þar eru ekki bara kjaramálin undir heldur einnig faglegir hagsmunir. Barátta fyrir tjáningarfrelsi, fyrir fjölmiðlafrelsi, fyrir öflugri fjölmiðlun, meiri lobbíisma og meiri stefnuhugsun. Þannig að ég myndi segja að okkur hafi tekist vel að breyta ekki bara stefnu félagsins og hvernig það starfar heldur líka ásýnd og áhrifum.“ Það er óneitanlega völlur á ykkur. Þið voruð að ráða inn verkefnastjóra, Guðmund Pálsson Baggalút… „Hann var einmitt að klára verkefnastjórnunargráðu í verkfræðideild Háskólans í Reykjavík þannig að mér fannst tilvalið að nýta þá þekkingu ofan á alla hina þekkinguna.“ Siggi og Biggi á fóðrunum Og svo eruð þið með framkvæmdastjóra auk þín sem formanns og starfsmann á skrifstofunni. Þetta er talsvert meira umleikis en þegar Hjálmar var þarna og var bæði formaður og framkvæmdastjóri í senn. Eða hvað? „Þó að Hjálmar segist hafa verið þarna einn þá var náttúrulega alltaf skrifstofa með honum. Og það voru tveir starfsmenn í hlutastarfi, sem voru þeir Birgir Guðmundsson og Sigurður Már Jónsson, félagar hans til margra ára. Sigurður Már var á launum sem varaformaður í dágóðan tíma og hét þá alþjóðafulltrúi. Og Birgir Guðmundsson var á launum við að skrifa á vefinn. Þannig að það er ekki alveg satt að Hjálmar hafi verið þarna einn. Þetta eru samtals mest þrjú stöðugildi sem við höfum verið með og vorum að bæta við því fjórða núna.“ Sigríður Dögg segir að á næsta ári verði BÍ 130 ára og þá verður mikið um dýrðir.vísir/anton brink Eins og vonandi hefur komið fram í þessu spjalli er í mörg horn að líta og á næsta ári heldur Blaðamannafélag Íslands upp á 130 ára afmæli sitt. „Já, við erum komin með afmælisnefnd sem er einmitt alveg að fara að hittast. Við ætlum að gera eitthvað stórt, sennilega í vor og slá saman einhverju við Blaðamannaverðlaunin og mögulega ljósmyndaverðlaunin. Kannski verður þetta í takti við Pressuball eins og haldin voru í gamla daga.“ Já, ég sakna þess. Þegar ég var að byrja í þessu félagi fyrir, hvað, rúmum 30 árum þá var miklu meiri stemning í tengslum við fagið. Pressuböll þóttu til að mynda viðburður í skemmtanalífinu? „Jú, jú. En það var náttúrulega ekkert í boði þá. Það má ekki gleyma því. Það er ekkert rosalega auðvelt að fá fólk út úr húsi í dag, sko. Það er bara svolítið þannig. Margt í boði. Allir í golfi. Ert þú ekki á kafi í því?“
Í bóli Bjarnars Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Félagasamtök Stjórnsýsla Mest lesið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Sjá meira