Körfubolti

„Bar­áttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ólafur Jónas Sigurðsson var með blendnar tilfinningar í brjósti sínu eftir leikinn í kvöld. 
Ólafur Jónas Sigurðsson var með blendnar tilfinningar í brjósti sínu eftir leikinn í kvöld.  Vísir/Pawel

Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með vinnuframlag leikmanna sinna þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Ólafur Jónas segir aftur á móti verk að vinna að fínpússa ákveðna hluti á báðum endum vallarins. 

„Miðað við að Xaviera er á öðrum fætinum í þessum leik og hvernig við komum inn í mótið þá getum við gengið þokkalega sáttar frá borði. Við viljum auðvitað alltaf vinna og ætluðum okkur sigur en það er margt í spilamennskunni sem við getum byggt á fyrir komandi leiki,“ sagði Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, að leik loknum.

„,Við sýndum á köflum flotta frammistöðu á báðum endum vallarins og það vantaði ekkert upp á baráttuna. Diljá Ögn dró vagninn í sóknarleiknum og það var ánægjulegt að sjá hversju vel hún spilaði,“ sagði Ólafur Jónas þar að auki.

„Það þarf samt sem áður að slípa nokkra hluti og mér finnst liðið eiga mikið inni. Við verðum betri þegar laskaðir leikmenn komast í betra stand og við verðum búin að vinna í ákveðnum hlutum. Liðið gæti verið á betri stað en ég hef engar áhyggjur af því að við munum ekki koma okkur þangað þegar á líður leiktíðina,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×