Handbolti

Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garða­bæ

Sindri Sverrisson skrifar
Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar karla.
Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar karla. vísir/Anton

Dregið var í 16-liða úrslit Powerade-bikars karla og kvenna í handbolta í Minigarðinum í dag. Ríkjandi bikarmeistarar Hauka fá Stjörnuna í heimsókn í karlaflokki.

Tólf lið voru í skálinni kvennamegin en Íslands- og bikarmeistarar Vals sátu hjá sem og Haukar sem taka þátt í Evrópukeppni.

Leikið verður í 16-liða úrslitum karla 8.-9. október en í 16-liða úrslitum kvenna 18.-19. nóvember.

Sextán liða úrslit kvenna og karla í Powerade-bikarnum.HSÍ

Powerade bikar kvenna, 16-liða úrslit:

  • Stjarnan – ÍBV
  • Afturelding – ÍR
  • Fjölnir – KA/Þór
  • Víkingur – Selfoss
  • FH – HK
  • Grótta – Fram

Íslands- og bikarmeistarar Vals sátu hjá í drættinum, ásamt Haukum sem taka þátt í Evrópukeppni. Bæði lið fara beint í 8-liða úrslit.

Powerade bikar karla, 16-liða úrslit:

  • HK – Afturelding
  • ÍBV B – Þór
  • FH – Fram
  • Hvíti Riddarinn – Grótta
  • Selfoss – Valur
  • Víkingur – KA
  • Haukar – Stjarnan
  • ÍR – ÍBV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×