Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar 22. september 2026 13:01 PMOS samtök Íslands (áður PCOS samtök Íslands) fengu inngöngu í ÖBÍ réttindasamtök á síðasta aðalfundi ÖBÍ. Þar með náðu samtökin mikilvægum áfanga og urðu hluti af stærra samfélagi samtaka sem vinna að réttindum, bættri þjónustu og auknum lífsgæðum fólks.
PMOS samtök Íslands (áður PCOS samtök Íslands) fengu inngöngu í ÖBÍ réttindasamtök á síðasta aðalfundi ÖBÍ. Þar með náðu samtökin mikilvægum áfanga og urðu hluti af stærra samfélagi samtaka sem vinna að réttindum, bættri þjónustu og auknum lífsgæðum fólks. En afhverju eiga samtök fólks með PMOS heima innan ÖBí? Eftir að hafa velt þeirri spurningu fyrir okkur er svarið í raun nokkuð einfalt: Við eigum heima þar sem réttindabaráttan fer fram! Réttindabarátta snýst meðal annars um að fólk fái rétta greiningu tímanlega, að á það sé hlustað og að það hafi aðgang að að fagfólki, meðferð og þjónustu. Auk þess snýst hún um að auka þekkingu og vitund í samfélaginu. Á heimasíðu ÖBÍ réttindasamtaka kemur fram að markmið þeirra sé “að íslenskt samfélag verði samfélag jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einskalingar, óháð líkamlegu og andlegu atgervi, njóti mannsæmandi lífskjara og jafnra möguleika til sjálfstæðs lífs og virkrar samfélagslegrar þátttöku.” Stórt skref í réttindabaráttu fólks með PMOS var stigið í maí á þessu ári þegar alþjóðlegu heiti heilkennisins var breytt úr Polycystic Ovary Syndrome í Polyendocrine Metabolic Ovary Syndrome. Heilkennið hét á íslensku fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, sem lýsir illa þeim víðtæku áhrifum sem það getur haft á innkirtla- og efnaskiptakerfilíkamans. Nýja heitið endurspeglar mun betur hversu fjölþætt heilkennið er og að áhrif þess ná langt út fyrir eggjastokkana. Unnið er að íslensku heiti fyrir PMOS, en bein þýðing gæti verið fjölinnkirtla-efnaskipta-eggjastokka heilkenni. PMOS er flókin innkirtla- og efnaskiptaröskun sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði. Einkenni eru fjölbreytt og geta m.a. verið óreglulegar blæðingar, aukinn hárvöxtur í andliti og/eða á líkama, húðvandi eins og feit húð og bólumyndun, hárþynning og hárlos á höfði, óútskýrð þyngdaraukning (sérstaklega fitusöfnun á kvið), auk þreytu og orkuleysis. Einkennin geta verið mjög mismunandi milli einstaklinga og listinn langt frá því að vera tæmandi. PMOS er verulega vangreint og talið að um 70% þeirra sem hafa heilkennið viti ekki af því. Greining fæst oft ekki fyrr en farið er að huga að barneignum og frjósemisvandi kemur í ljós. Fáist greining fyrr er því miður algengur misskilningur í heilbrigðiskerfinu (sem og annarsstaðar) að ekki þurfi að huga sérstaklega að heilkenninu fyrr en barneignir eru fyrirhugaðar eða að það skipti síður máli eftir að barneignum lýkur. Raunin er hins vegar sú að PMOS getur haft áhrif á heilsu og líðan langt úr fyrir frjósemi. Heilkenninu fylgir aukin áhætta á ýmsum heilsufarsvandamálum og benda sífellt fleiri rannsóknir til þess að snemmtæk íhlutun, eftirfylgni og viðeigandi meðferð geti skipt máli til lengri tíma. Þar má m.a. nefna aukna áhættu á sykursýki 2, hjarta- og æðasjúkdómum og krabbameini. PMOS getur nefnilega haft áhrif á daglega líðan, vinnugetu og geðheilsu frá kynþroska til æviloka. Með inngöngu í ÖBÍ réttindasamtök gefst okkur tækifæri til að vinna í krafti fjöldans. Við ætlum að nýta þennan nýja vettvang til að fræða, þrýsta á nauðsynlegar kerfisbreytingar og tryggja að raddir fólks með PMOS og aðstandenda þeirra heyrist. September er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður um PMOS. Af því tilefni standa PMOS samtök Íslands fyrir málþingi fimmtudaginn 24. september næstkomandi. Á málþinginu munu Ragnheiður Valdimarsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingalæknir hjá Evuhúsi og Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir innkirtlalæknir og yfirlæknir efnaskipta- og offituteymis Reykjalundar vera með erindi um heilkennið, hvað felst í nafnabreytingunni og margbreytileg áhrif heilkennisins. Þá munu Hafrún Helga og Aldís Björk kynna niðurstöður BS verkefnis í sálfræði þar sem þær báru saman andlega líðan og sjálfsmat kvenna með og án PMOS. Við munum einnig fá kynningu frá ÖBÍ réttindasamtökum, grínhópurinn Eldklárar og eftirsóttar slá á létta strengi og léttar veitingar verða á boðstólnum. Við viljum sérstaklega hvetja heilbrigðisstarfsfólk til að mæta sér að kostnaðarlausu! Hér má sjá viðburðarsíðu málþingsins og dagskrá Hér má sjá frekari upplýsingar um heilkennið og lesa nánar um PMOS samtök Íslands Höfundur er formaður PMOS samtaka Íslands.
Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Fleiri fréttir Í kossaflensi á listasýningu Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira