Handbolti

Aftur­elding vann síðari hálf­leikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Árni Bragi var markahæstur hjá Aftureldingu. 
Árni Bragi var markahæstur hjá Aftureldingu.  Vísir/Jón Gautur

Afturelding vann nýliða Víkings í fyrstu umferð Olís-deildar karla í dag. Síðari hálfleikur leiksins var spilaður klukkan 13 í dag.

Staðan í hálfleik var 17-12 en fyrri hálfleikurinn fór aftur á móti fram á föstudagskvöldið en ekki var hægt að klára leikinn vegna rafmagnsleysis. Afturelding hélt áfram góðum leik og vann í dag samanlagt 35-29.

Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur með 8 mörk hjá Aftureldingu en Oscar Lykke gerði sjö. Sigurður Páll Matthíasson skoraði átta mörk fyrir Víkinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×