Skordýr í súpu skólabarna Árni Sæberg skrifar 4. september 2026 16:31 Skordýrin fundust í kjötsúpu sem var í boði hjá Skólamat í dag. skólamatur Skordýr fundust í kjötsúpu sem Skólamatur sendi frá sér til sex leik- og grunnskóla í hádeginu í dag. Fyrirtækið segir um frávik í aðkeyptu hráefni frá fyrirtækinu Garra að ræða. „
Í dag bárust Skólamat tilkynningar um skordýr í hrísgrjónum sem notuð höfðu verið við matargerð. Um er að ræða frávik sem fannst í aðkeyptu hráefni frá fyrirtækinu Garra en ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að rekja megi frávikið til framleiðslu, matseldar, framreiðslu eða hreinlætis hjá Skólamat,“ segir í yfirlýsingu á vef Skólamatar. Í yfirlýsingunni er þess ekki getið um hvers konar skordýr var að ræða. Mbl.is greinir frá því að þau hafi verið bjöllur. Hráefninu fargað Í yfirlýsingu Skólamatar segir að um leið og umfang málsins varð ljóst hafi viðbragðsferlar verið virkjaðir. Viðkomandi hráefni hafi verið tekið úr notkun, því fargað og rekjanleiki staðfestur. Tilkynningar hafi nú borist frá sex skólum. Málið hafi jafnframt verið tekið upp við birgja. Heilbrigðiseftirlitið hafi verið upplýst um málið og það komið á starfsstöð Skólamatar til að fara yfir aðstæður og verklag. Engar athugasemdir hafi verið gerðar á vettvangi að lokinni þeirri skoðun. „Staðfest er að ekki stafaði heilsufarsleg hætta af atvikinu. Það breytir því ekki að við lítum málið alvarlegum augum og hörmum það mjög. Við bregðumst við af festu þegar frávik kemur upp, óháð því hvar uppruna þess er að finna.“ Viðbrögð Skólamatar hafi miðað að því að stöðva notkun hráefnisins, rekja það, kanna umfang málsins, upplýsa viðeigandi aðila og tryggja að frekari dreifing ætti sér ekki stað. Engar bjöllur í súpunni á Ljósanótt Matvælaöryggi og gæði séu grundvallaratriði í starfsemi Skólamatar. Fyrirtækið hafi því farið yfir atburðarásina og viðbrögð þess frá því að fyrsta tilkynning barst. Fyrirtækið muni fylgja málinu áfram eftir með umræddum birgja og eftirlitsaðilum. „Skólamatur mun líkt og undanfarin ár bjóða upp á kjötsúpu á Ljósanótt í kvöld. Súpan í kvöld verður gerð úr nýju og fersku hráefni frá öðrum birgja. Við hörmum innilega atvikið sem átti sér stað í dag og ítrekum enn fremur að atburðir dagsins tengjast ekki framleiðslu, framreiðslu og verkferlum Skólamatar heldur fráviki í aðkeyptu hráefni.“
Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Matur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira