Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2026 21:18 Arnór Snær Óskarsson verður áfram í algjöru lykilhlutverki hjá Val í vetur. vísir/Anton Íslandsmeistarar Vals hófu nýja leiktíð í Olís-deild karla í handbolta á fjögurra marka sigri gegn Selfyssingum á útivelli, 34-30.
Heimamenn létu ríkjandi meistara hafa fyrir hlutunum í kvöld og voru yfir drjúgan hluta fyrri hálfleiks. Valsmenn náðu þó forystunni fyrir leikhlé, 17-15, og höfðu þriggja til fjögurra marka forskot um miðjan seinni hálfleik. Mestur varð munurinn fimm mörk í lokin, 34-29, áður en Selfyssingar skoruðu lokamark leiksins. Arnór og Gunnar í aðalhlutverkum Besti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð, Arnór Snær Óskarsson, og Gunnar Róbertsson, máttarstólpi úr hinu frábæra U18-landsliði Íslands, fóru fyrir Valsliðinu í kvöld. Arnór skoraði 10 mörk úr 14 skotum og Gunnar 9 mörk úr 11 skotum. Hvor um sig skoraði fjögur mörk af vítalínunni. Björgvin Páll Gústavsson varði átta skot í marki Vals, eða 24% þeirra skota sem hann fékk á sig, og Jens Sigurðarson tvö skot eða 29%. Hjá Selfossi vörðu Ísak Kristinn Jónsson og Alexander Hrafnkelsson fimm skot hvor en Ísak varði 38% þeirra skota sem hann fékk á sig á meðan Alexander varði 16%. Hákon Garri Gestsson var markahæstur Selfyssinga með sjö mörk úr tíu skotum og Tryggvi Sigurberg Traustason skoraði sex mörk úr sjö skotum. Öll tölfræði úr leiknum er fengin af vef HB Statz sem heldur utan um alla tölfræði úr Olís-deildunum. Fyrr í kvöld vann KA öruggan útisigur gegn HK í fyrsta leik tímabilsins.
Olís-deild karla Valur UMF Selfoss Tengdar fréttir Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna KA-menn unnu stórsigur í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild karla í handbolta þegar þeir heimsóttu HK-inga í Kórinn. Niðurstaðan varð 37-28 sigur gestanna frá Akureyri sem nutu þess að hafa fengið Dag Árna Heimisson aftur í sitt lið. 3. september 2026 20:40 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira
Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna KA-menn unnu stórsigur í fyrsta leik tímabilsins í Olís-deild karla í handbolta þegar þeir heimsóttu HK-inga í Kórinn. Niðurstaðan varð 37-28 sigur gestanna frá Akureyri sem nutu þess að hafa fengið Dag Árna Heimisson aftur í sitt lið. 3. september 2026 20:40