Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. september 2026 20:01 Trausti Hjálmarsson, formaður bændasamtaka Íslands, á síðasta bændaþingi. Vísir/Anton Brink Formaður Bændasamtakanna á ekki til orð eftir að brotist var aftur inn í svínabú Stjörnugríss og svínunum hleypt út. Bændur þurfi að leita leiða til að tryggja öryggi búskapsins.
Trausti Hjálmarsson segist ekki eiga til orð eftir að brotist var inn í svínabú Stjörnugríss og svínunum sleppt út. „Maður trúir þessu varla, að þetta sé orðið eitthvað viðvarandi í íslenskum landbúnaði, að eiga þetta á hættu. En þetta er hins vegar bara staðan og raunveruleikinn blasir við okkur með þessum hætti,“ segir Trausti sem ræddi innbrotið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „Í einfeldni hélt maður kannski að fólk hefði ekki áttað sig alveg á því hvaða afleiðingar svona verknaður hefur fyrir dýrin og dýravelferðina. Þetta eru svo miklar pyntingar á dýrunum sem eiga sér stað þegar það er ráðist svona inn í þessi hús og allt rifið upp og þeim hleypt út.“ Greinilega vel skipulagt Trausti telur að stór hópur andstæðinga dýrahalds standi að baki innbrotunum og um sé að ræða afar vel skipulagða brotastarfsemi. „Við þekkjum nú umræðuna sem átti sér stað hérna fyrir og er alltaf lifandi af og til um blóðmerahald og nú er það þetta með þessar búgreinar sem að er bara ráðist svona hrottalega að,“ segir hann. „Þetta er greinilega vel útfært og skipulagt og búið að hugsa alveg í þaula hvernig á að standa að þessu þannig að viðkomandi komist upp með án þess að til sjáist eða viðkomandi náist.“ Lögreglan hefur enn ekki handtekið neinn í tengslum við málið en segist Trausti samt sem áður setja allt sitt traust á stjórnvöld og lögregluna. „Ég öfunda ekki lögregluna en við verðum samt að treysta á það að lögreglan nái í skottið á þeim.“ Bæta þurfi öryggisbúnaðinn Bændur líti til þess að verða sér úti um þróaðri öryggisbúnað á við myndavélar og þjófavarnarkerfi til að sporna gegn ítrekuðum innbrotum. „Ég held að við þurfum að fara að leita allra leiða til að tryggja meira öryggi, bæði starfsfólks, bænda og dýra heima á búum,“ segir Trausti. Bændafélagið sjálft þurfi að fara að skoða hvort hægt sé að hafa milligöngu um slík tæki fyrir félagsmenn sína. Það sé flókin aðgerð að koma slíkum kerfum í notkun en bændur standi frammi fyrir því að lítið annað sé í boði. „Það er eitthvað sem við þurfum alveg greinilega að taka til skoðunar.“ Fólki brugðið „Það er alltaf ákveðin hætta á að svona hlutir vindi upp á sig og fólk missi það alveg frá sér sem það er raunverulega að reyna að gera, ég skil ekki alveg enn hver tilgangurinn á að vera,“ segir hann. „Fólk getur nú slasað sig við svona gjörning sem dæmi. Svo er ef bændur eiga þá hættu að mæta einhverjum svona hryðjuverkum í sínum gripahúsum. Það er ekkert sem maður vill að bændur upplifi, þeir eiga að vera í skjóli á sínum vinnustað og heimili.“ Hann átti enn eftir að ræða við forsvarsmenn Stjörnugríss en segir að fólkinu í stéttinni sé almennt brugðið og líði illa. „Ég vona nú að við bændur förum ekki að gefa eftir og gefa undan einhverjum svona þrýstingi og förum eitthvað að skríða inn í einhverja skel og loka okkur af. Ég held að það sé þvert á móti það sem við eigum frekar að gera, að opna búin og bjóða fólk velkomið.“
Lögreglumál Matvælaframleiðsla Dýr Reykjavík síðdegis Bylgjan Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira