Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2026 07:24 Hiti verður á bilinu sjö til fjórtán stig, en fjögur til níu stig austanlands Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir hæglætis veður í dag þar sem yfirleitt verður bjart, en þó verða einhverjar síðdegisskúrir sunnanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kólnar heldur austanlands, en annars áfram milt veður. Hiti verður á bilinu sjö til fjórtán stig, en fjögur til níu stig austanlands. Allvíða líkur á næturfrosti á Norðaustur- og Austurlandi. „Lægð úr suðvestri nálgast síðan landið á morgun með vaxandi austanátt og þykknar upp er líður á daginn og annað kvöld verður orðið ansi hvasst allra syðst, en undir Eyjafjöllum getur austanáttin verið ansi snúin með tilliti til að vindhviður verða gjarnan ríflega tvöfalt sterkari en meðalvindurinn. Því gætu hviður orðið hátt í 40 m/s sem aftur geta orðið ökutækjum sem taka á sig mikinn vind, skeinuhættar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vaxandi austanátt, 10-15 m/s við suðurströndina síðdegis, en annars hægari. Bjart með köflum norðaustanlands, en skýjað og dálitlar skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 11 stig, svalast austantil. Á fimmtudag: Austan og norðaustan 8-15 m/s, skýjað og rigning, einkum sunnantil. Hiti 7 til 13 stig. Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt, víða hæg. Rigning austanlands, en annars dálitlar skúrir. Hiti 8 til 14 stig, mildast syðst. Á laugardag: Fremur hæg austlæg eða breytilega átt og rigning með köflum, en lengst af bjartviðri sunnantil. Hiti 7 til 12 stig. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir hæga norðlæga eða breytilega átt og stöku skúrir á víð og dreif. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Sjá meira