„Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. ágúst 2026 19:08 Guðný Geirsdóttir átti tvær frábærar vörslur gegn Breiðabliki. vísir/anton Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV, stóð heldur betur fyrir sínu þegar liðið lagði Íslandsmeistara Breiðabliks að velli, 1-2, í 17. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Guðný hrósaði samherjum sínum í hástert eftir leikinn í Kópavoginum. „
Þetta er náttúrulega bara sturlað. Við mættum almennilega til leiks eins og við höfum talað um að gera. Alltof oft höfum við átt slæman fyrri hálfleik og svo góðan seinni hálfleik og við töluðum um að það væri bara ekkert í boði. Við þyrftum bara að eiga báða hálfleikana góða og við gerðum það í dag,“ sagði Guðný í samtali við Vísi eftir leik. Eyjakonur voru gríðarlega kraftmiklar og hættulegar í fyrri hálfleik en þurftu að bíða fram í uppbótartíma eftir marki. Guðný segir að það hafi verið sætt að sjá boltann í netinu. „Jú, ekkert smá. Svo vorum við ótrúlega nálægt því að setja bara annað mark strax á næstu mínútu. Þannig að það hefði verið ótrúlegt að komast í 2-0 fyrir hálfleikinn. En sem betur fer héldum við þetta út og kláruðum þetta,“ sagði Guðný. Í seinni hálfleik sótti Breiðablik mun meira og vörn ÍBV hafði í nægu að snúast. Guðný segir að það hafi verið gott að standa fyrir aftan Eyjavörnina í dag. „Það er ótrúlega góður talandi í öftustu línunni hjá okkur og við nýtum okkur það vel. Það varð smá misskilningur þarna á einum tímapunkti, eiginlega í markinu. En ég treysti stelpunum mínum og þær treysta mér,“ sagði markvörðurinn. Breiðablik minnkaði muninn skömmu eftir að ÍBV komst í 0-2 en Eyjakonur héngu á forskotinu. „Það voru bara fjórar mínútur eða eitthvað eftir og það er alltaf hætta á að þær fái þefinn og komi alveg á 120 prósent á okkur en við héldum þetta út,“ sagði Guðný. Með sigrinum komst ÍBV upp í 3. sæti deildarinnar þegar ein umferð er eftir fram að skiptingu. „Bara næsti leikur og áfram gakk,“ sagði Guðný aðspurð hvaða augum ÍBV horfi á framhaldið. En hvað langar Eyjakonur að gera á lokaspretti tímabilsins? „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti en við gerum okkar besta í einum leik í einu,“ sagði Guðný að lokum.
Besta deild kvenna ÍBV Breiðablik Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira