Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 28. ágúst 2026 12:01 Sigríður Kristinsdóttir er sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu. vísir/einar Tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Kjörsóknin er sú mesta sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi séð hingað til. „
Það er bara mjög mikil kjörsókn enn hér í utankjörfundi. Samtals hafa í heildina hjá öllum sýslumönnum og sendiráðum 56.774 og hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu eru samtals búnir að kjósa 37.815 og þetta er það lang mesta sem við höfum séð hingað til,“ segir Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu. „Þannig þetta er mjög mikið og sýnist í heildina að það eru um 270 þúsund á kjörskrá þannig það eru um 20 prósent nú þegar búnir að kjósa utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni núna 2026 sem er mjög mikið.“ Hvernig hefur stígandinn verið í þessu. Hefur þetta verið jöfn og þétt aðsókn eða hefur bætt hratt í þessa síðustu daga? „Kjörsókn hefur verið mikil frá því að við opnuðum. Við fengum 266 kjósendur í hús hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu á fyrsta degi þann 27. júlí en þetta magnast og það var 5001 kjósandi sem kom í gær til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og við búumst við öðrum eins fjölda í dag.“ Hægt er að greiða atkvæði í Kringlunni til klukkan 18:30 í kvöld og í Hlíðarsmára 1 til klukkan 21:00 í kvöld. Á morgun er stóri dagurinn. Flestir kjörstaðir verða opnaðir klukkan níu í fyrramálið og lokað klukkan tíu annað kvöld. Sumir kjörstaðir eru opnir skemur en upplýsingar um opnunartíma má finna á kosning.is. Æsispennandi laugardagskvöld Talning hefst í hverju kjördæmi þegar kjörstöðum hefur verið lokað annað kvöld. Búist er við því að fyrstu tölur verði birtar úr Suðurkjördæmi um eða upp úr klukkan hálf ellefu. Næstu tölur gætu birst í Norðausturkjördæmi á milli ellefu og hálf tólf en í öðrum kjördæmum þykir líklegt að þær verði birtar um miðnætti. Hnífjafnt hefur verið á munum í skoðanakönnunum. Það stefnir í æsispennandi laugardagskvöld en við á Sýn bjóðum upp á kosningavöku sem hefst klukkan 21:50 og nýjustu tölur verða birtar um leið og þær berast á Vísi.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Sjá meira