Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? Sturlaugur Þorsteinsson og skrifa 27. ágúst 2026 15:22 Sagt er að við „höfum það svo gott“ (minnir á 2007), þannig að ekkert sé að sækja til Evrópu. Eftir Hrunið hófum við vegferð í átt til ESB - nánast á hnjánum þá. Hins vegar er styrkur okkur nú mun meiri en þá og því frábær samningsaðstaða. Þess vegna á að semja núna! Það er með ólíkindum hve neikvæðum hefur vaxið fiskur um hrygg, mestmegnis í skjóli harðvítugs hræðsluáróðurs, hálfsannleika, sögusagna og hreinræktaðra lyga. Allt þetta samsvarar ógeðfelldum Brexit-áróðrinum fyrir tíu árum, en einungis 30% telja nú að Brexit hafi verið rétt ákvörðun. Íslendingar hafa ALDREI tapað á því opna dyrnar fyrir auknu alþjóðlegu samstarfi, heldur þvert á móti stórgrætt - og þá ekki síst vegna aðildar að EFTA og EES. Heimsmynd okkar er gerbreytt. Nýleg dæmi sanna, svo eitt sé nefnt, að erfitt og kannski ómögulegt er að treysta Bandaríkjunum þegar raunverulega þarf á að halda. Við þurfum að endurskoða stöðu okkar með tilliti til þessa, en líka í ljósi viðvarandi efnahagslegs óstöðugleika og umfangsmikilla náttúrfarsbreytinga - hvert leiða þær okkur? Við þurfum að marka okkur stefnu til langs tíma. Ísland er hluti Evrópu, vöggu lýðræðis og mannréttinda. Þar eigum við menningarlegan og sögulegan bakgrunn og þar er okkar lang stærsti útflutningsmarkaður. Framundan er gríðarlegt átak systkinaþjóða okkar að styrkja og efla Evrópu framtíðarinnar. Við eigum að nýta okkur fullveldið og treysta það í sessi með því að taka öflugan þátt í þessari vegferð. Við eigum að láta rödd okkar heyrast og tryggja fulltrúa þar sem ákvarðarnir eru teknar. Látum ekki sérhagsmunaöflin ráða för! Göngum hnarreist og ákveðin til samninga. Tryggjum auðlindir, afkomu, stöðugleika og fullveldið með því að segja JÁ á laugardaginn. JÁ til að SJÁ! Höfundur er verkfræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Sjá meira
Sagt er að við „höfum það svo gott“ (minnir á 2007), þannig að ekkert sé að sækja til Evrópu. Eftir Hrunið hófum við vegferð í átt til ESB - nánast á hnjánum þá. Hins vegar er styrkur okkur nú mun meiri en þá og því frábær samningsaðstaða. Þess vegna á að semja núna! Það er með ólíkindum hve neikvæðum hefur vaxið fiskur um hrygg, mestmegnis í skjóli harðvítugs hræðsluáróðurs, hálfsannleika, sögusagna og hreinræktaðra lyga. Allt þetta samsvarar ógeðfelldum Brexit-áróðrinum fyrir tíu árum, en einungis 30% telja nú að Brexit hafi verið rétt ákvörðun. Íslendingar hafa ALDREI tapað á því opna dyrnar fyrir auknu alþjóðlegu samstarfi, heldur þvert á móti stórgrætt - og þá ekki síst vegna aðildar að EFTA og EES. Heimsmynd okkar er gerbreytt. Nýleg dæmi sanna, svo eitt sé nefnt, að erfitt og kannski ómögulegt er að treysta Bandaríkjunum þegar raunverulega þarf á að halda. Við þurfum að endurskoða stöðu okkar með tilliti til þessa, en líka í ljósi viðvarandi efnahagslegs óstöðugleika og umfangsmikilla náttúrfarsbreytinga - hvert leiða þær okkur? Við þurfum að marka okkur stefnu til langs tíma. Ísland er hluti Evrópu, vöggu lýðræðis og mannréttinda. Þar eigum við menningarlegan og sögulegan bakgrunn og þar er okkar lang stærsti útflutningsmarkaður. Framundan er gríðarlegt átak systkinaþjóða okkar að styrkja og efla Evrópu framtíðarinnar. Við eigum að nýta okkur fullveldið og treysta það í sessi með því að taka öflugan þátt í þessari vegferð. Við eigum að láta rödd okkar heyrast og tryggja fulltrúa þar sem ákvarðarnir eru teknar. Látum ekki sérhagsmunaöflin ráða för! Göngum hnarreist og ákveðin til samninga. Tryggjum auðlindir, afkomu, stöðugleika og fullveldið með því að segja JÁ á laugardaginn. JÁ til að SJÁ! Höfundur er verkfræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði.
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar