Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Aron Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2026 07:24 Ólafur Guðmundsson lék um árabil í íslenska landsliðsbúningnum og hér er hann í landsleik. Getty/Nikola Krstic Endurkoma Ólafs Guðmundssonar, fyrrverandi landsliðsmanns Íslands í handbolta, inn á völlinn entist ekki lengi í gær því Íslendingurinn fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur inn á vellinum.
Ólafur, sem hefur að skipa löngum ferli bæði í atvinnumennsku sem og með íslenska landsliðinu, hafði tekið þá ákvörun fyrr í ár að leggja skóna á hilluna þá 35 ára gamall. Þessi öfluga, rétthenta skytta lék stóran hluta atvinnumannsferilinn með Kristianstad í Svíþjóð, þar sem hann er núna búsettur ásamt fjölskyldu sinni, en hefur einnig leikið í Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og Sviss. Ólafur hefur undanfarið fengið að æfa með gamla liði sínu Kristianstad þar sem að hann er afar mikils metin og þróuðust málin þannig að forráðamenn félagsins vildu hafa hann með í leikmannahópnum á yfirstandandi tímabili. Því varð úr að Ólafur átti endurkomu inn á völlinn í gær þegar að Kristianstad tók á móti Ystad í sænska bikarnum í leik sem endaði með sigri Kristianstad sem hefur þar með tryggt sér sæti í átta liða úrslitum. Stuðningsmenn Kristianstad tóku afar vel á móti Ólafi fyrir leik eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan. Endurkoman fór ekki eins og Íslendingurinn hafði séð fyrir sér. View this post on Instagram A post shared by IFK Kristianstad (@ifk1899) Ólafi var skipt inn á 48.mínútu leiksins og fékk aftur dúndrandi lófaklapp frá stuðningsmönnum en ekki var hann lengi inn á vellinum því aðeins sjö sekúndum síðar fékk Ólafur að líta rauða spjaldið. Ekki alveg byrjunin sem okkar maður hafði vonast eftir en góðu fréttirnar þær að nóg er eftir af tímabilinu. Vísir hefur ekki komist að því hvers vegna Ólafur fékk að líta rauða spjaldið en uppfærir fréttina er það kemur í ljós. Kristianstad er mikið Íslendingalið og þeir gerðu sig gildandi í gær. Einar Aðalsteinsson skoraði fimm mörk í sigrinum gegn Ystad, Baldur Fritz Bjarnason skoraði einnig fimm mörk og Andri Erlingson var með tvö.
Sænski handboltinn Handbolti Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira