Íslenski boltinn

Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eftir þrjá sigra í röð eru Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Haukum komnar upp í 2. sæti Lengjudeildar kvenna. En KR, HK og Selfoss eru skammt undan.
Eftir þrjá sigra í röð eru Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Haukum komnar upp í 2. sæti Lengjudeildar kvenna. En KR, HK og Selfoss eru skammt undan. vísir/hulda margrét

Grótta er komin með annan fótinn upp í Bestu deild kvenna en gríðarleg spenna er um 2. sætið í Lengjudeildinni. Haukar, KR, HK og Selfoss keppast um það.

KR tapaði fyrir FHL á heimavelli, 0-2. Alexis Wright skoraði bæði mörk Austfirðinga sem eru í 7. sæti deildarinnar með 21 stig.

Tapið hjá KR gaf Haukum tækifæri á að ná 2. sætinu og það gerðu Hafnfirðingar með 1-5 sigri á Völsungum á Húsavík.

Þetta var þriðji sigur Hauka í röð. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir skoraði tvö mörk sem og Sara Björk Gunnarsdóttir. Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi hefur skorað fjögur mörk í síðustu þremur leikjum Hauka. Halla Þórdís Svansdóttir lagði svo eitt mark í púkkið. Maria Munoz skoraði mark Völsungs sem er í níunda og næstneðsta sæti með tólf stig, fimm stigum frá öruggu sæti.

Haukar eru með 27 stig í 2. sæti deildarinnar en KR, HK og Selfoss eru öll með 26 stig. Í næstu umferð mætast Haukar og KR í gríðarlega mikilvægum leik á Ásvöllum.

HK vann 0-8 sigur á botnliði Tindastóls á Sauðárkróki. Cally Togiai og Karlotta Björk Andradóttir skoruðu báðar þrennu fyrir HK-inga og Henríetta Ágústsdóttir og Valgerður Lilja Arnarsdóttir voru einnig á skotskónum.

Stólarnir eru áfram með þrjú stig á botni deildarinnar og 2. deildin þeirra bíður þeirra á næsta ári. 

Stevie Reynolds tryggði Selfossi 1-0 sigur á ÍA. Þetta var þriðji sigur Selfyssinga í síðustu fjórum leikjum. Skagakonur eru í 6. sæti deildarinnar með 21 stig.

Grótta er með 35 stig á toppi deildarinnar, átta stigum meira en Haukar og níu stigum á undan KR, HK og Selfossi. Seltirningar þurfa aðeins einungis eitt stig til viðbótar til að tryggja sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×