Handbolti

Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Díana Dögg Magnúsdóttir er í stóru hlutverki hjá meistaraliði Blomberg-Lippe.
Díana Dögg Magnúsdóttir er í stóru hlutverki hjá meistaraliði Blomberg-Lippe. hsg-blomberg-lippe.de

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er meistari meistaranna í þýska handboltanum. 22-22 jafntefli varð niðurstaða meistaraleiksins en 26-24 sigur vannst eftir vítakeppni gegn Borussia Dortmund.

Blomberg-Lippe varð Þýskalandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins í vor, eftir úrslitaeinvígið við Borussia Dortmund, og fylgdi sigrinum vel eftir í dag.

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu fyrir Blomberg-Lippe. Elín Rósa Magnúsdóttir var utan leikmannahóps og spilaði ekki.

Ekkert dugði til að skilja liðin að í venjulegum leiktíma og haldið var í vítakeppni. 

Í vítakeppninni var markmaðurinn Nuria Bucher hetja Blomberg-Lippe en hún kom inn af bekknum eftir fyrstu tvö vítin og tókst að verja næstu tvö víti frá Dortmund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×