JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ JYSK 21. ágúst 2026 08:54 Bjarni Friðrik Jóhannesson (t.v.), er forstöðumaður aðfangastýringar hjá JYSK og starfsmaður Lagerinn Iceland, móðurfélags JYSK og Sölvi Örn Sölvason, vöruhússtjóri hjá JYSK. JYSK hefur vaxið hratt á Íslandi undanfarin ár og nú er komið að stórum áfanga í þeirri vegferð. Fyrirtækið tók í notkun í gær nýtt og mun stærra vöruhús í Korputúni í Blikastaðalandi í Mosfellsbæ sem er fyrsta vistvottaða atvinnusvæði landsins. Öll starfsemi vöruhússins hefur því verið flutt frá Korputorgi.
Þar verður ekki aðeins meira pláss fyrir vörur heldur mun öll aðstaða gjörbreytast og skapa fyrirtækinu svigrúm til frekari vaxtar. Nýja vöruhúsið er fyrsti áfanginn í stærri uppbyggingu JYSK á svæðinu. Síðar flytja skrifstofur fyrirtækisins og móðurfélagsins í húsið og í kjölfarið verður þar einnig opnuð ný JYSK-verslun. „Það er því óhætt að segja að það sé nóg fram undan hjá okkur í JYSK,“ segir Bjarni Friðrik Jóhannesson, forstöðumaður aðfangastýringar hjá JYSK og starfsmaður Lagerinn Iceland, móðurfélags JYSK. Gamla vöruhúsið löngu sprungið Það er ekki að ástæðulausu sem ráðist var í þessa miklu framkvæmd. JYSK hefur verið með vöruhús sitt við Korputorg undanfarin ár en með auknum umsvifum fyrirtækisins er húsnæðið fyrir löngu orðið of lítið. „Gamla vöruhúsið er 5.800 fermetrar og þar höfum við verið með í um 4.000 vörubretti. Húsnæðið hefur í raun verið sprungið í langan tíma og verið takmarkandi þáttur í starfseminni undanfarin ár,“ segir Sölvi Örn Sölvason, vöruhússtjóri hjá JYSK. Vöxtur fyrirtækisins kallaði því á stærra og hentugra húsnæði sem gæti stutt betur við starfsemina til framtíðar. „JYSK hefur vaxið hratt og gengið glimrandi vel. Það er í raun kveikjan að þessari fjárfestingu á Blikastaðalandinu, að styðja betur við áframhaldandi vöxt félagsins á Íslandi,“ segir Bjarni. Nýja vöruhús JYSK í Korputúni um 7.900 fermetrar. Nýja vöruhúsið er um 7.900 fermetrar og stækkunin því umtalsverð. Fermetrunum fjölgar um 36 prósent en breytingin á geymslurýminu er enn meiri. „Við erum að næstum því þrefalda fjölda brettahólfa í um 12.000 því hæð nýja hússins er mun meiri. Þetta er því gríðarleg breyting fyrir okkur,“ segir Örn. Meira pláss skilar sér alla leið í verslanirnar Stærra vöruhús snýst þó ekki eingöngu um að koma fleiri vörum fyrir. Aukið rými gerir JYSK kleift að bæta vöruflæði, einfalda verkferla og þjónusta verslanir fyrirtækisins betur. Undanfarið ár hefur nýtingin í gamla vöruhúsinu verið í kringum 95 til 96 prósent. Það kann að hljóma vel að hvert horn sé nýtt, en í vöruhúsarekstri getur of mikil nýting haft öfug áhrif. „Það er ekki æskilegt að vera í svona mikilli nýtingu því þá verður allt miklu erfiðara. Í vöruhúsastarfsemi er miðað við að hámarksnýting sé í kringum 85 prósent áður en þrengslin fara að hafa neikvæð áhrif á verkferla,“ útskýrir Bjarni. Með nýja húsinu skapast því svigrúm til að gera ýmislegt sem erfitt hefur verið að koma við hingað til. „Við getum stutt betur við verslanirnar, fengið betri takt í vöruflæðið og tryggt betur að við lendum ekki í vöruvöntun á lykiltímabilum yfir árið. Nú er til dæmis farið að styttast í Black Friday, þannig að það er fjör fram undan,“ segir Bjarni. Sækja vörurnar þegar það hentar Viðskiptavinir JYSK munu einnig finna fyrir breytingunum. Margir sækja stærri vörur, svo sem húsgögn, beint í vöruhúsið og í framhaldi af flutningunum verður tekið upp nýtt sjálfsafgreiðslukerfi sem á að gera afhendinguna sveigjanlegri. „Við erum að breyta fyrirkomulaginu við afhendingu og skiptum yfir í sjálfsafgreiðslukerfi þar sem vörurnar eru settar í sérstök afhendingarhólf. Þegar varan er tilbúin fær viðskiptavinurinn SMS og getur komið og sótt hana sjálfur innan ákveðins tíma,“ segir Örn. Mariusz Nowicki, aðstoðarvöruhúsastjóri, að störfum við flutninga í vöruhúsi í JYSK á Korputorgi. Fyrirkomulagið minnir að mörgu leyti á þær sjálfsafgreiðslulausnir sem margir þekkja nú þegar við afhendingu netpantana. „Þetta gefur viðskiptavininum meiri sveigjanleika og gerir okkur kleift að hafa afhendinguna opna lengur. Sambærilegar lausnir hafa verið notaðar hjá systurfélögum okkar í Eystrasaltslöndunum um nokkra hríð og gefið feikilega góða raun,“ segir Bjarni. Til að byrja með verður sjálfsafgreiðslan opin á dagvinnutíma en gert er ráð fyrir að fyrirkomulagið geti þróast áfram eftir því sem reynsla fæst á það. Það eru ekki bara fleiri fermetrar sem fylgja flutningunum. Aðstaðan er frá grunni sniðin að starfsemi JYSK og fyrirtækið endurnýjar jafnframt tækjakost sinn. „Þetta verður mun flottara og betra. Allt inni í húsnæðinu er nýtt og aðstaðan sniðin að starfseminni. Við erum líka að endurnýja allan tækjakost og taka í notkun ný tæki samhliða þeim sem við höfum notað áður,“ segir Bjarni. Skrifstofur og ný verslun fylgja í kjölfarið Opnun vöruhússins er aðeins fyrsti hluti framkvæmdarinnar. Næsti áfangi verður flutningur skrifstofa JYSK og móðurfélagsins Lagerinn Iceland í nýja húsnæðið. „Það verður mikill plús að hafa skrifstofurnar á sama stað og vöruhúsið. Aðstaðan verður öll mun betri og það mun klárlega fara betur um starfsfólkið,“ segir Bjarni. Síðasti áfanginn verður síðan opnun nýrrar JYSK-verslunar í sama húsi í byrjun næsta árs. Verslunin verður í norðurenda byggingarinnar sem snýr að Mosfellsbæ. Með nýju vöruhúsi, nýjum skrifstofum og nýrri verslun verður því til ný miðstöð fyrir starfsemi JYSK á Íslandi. Fyrsta og stærsta skrefið er þó vöruhúsið sem gefur fyrirtækinu það svigrúm sem hefur vantað undanfarin ár. „Við höfum verið svolítið sprungin í ansi langan tíma. Með þessu nýja húsi opnast fjölmörg tækifæri til að auka þjónustuna, bæta vöruflæðið og styðja betur við verslanirnar okkar. Þetta er stórt skref fyrir okkur,“ segir Bjarni að lokum.
Verslun Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira